3000 jarðskjálftar í maí 15. júní 2009 11:31 Stærsti jarðskjálftinn á suðurlandi mældist 2,7 stig.
Í maí mældust um 3.000 jarðskjálftar á landinu, þar af um 2.000 í skjálftaröð við Fagradalsfjall á Reykjanesskaga. Þetta kemur fram í frétt á vef Veðurstofu Íslands. Stærsti skjálftinn var þann 29. maí og mældist 4,7 á richter en upptök hans voru við vestanvert Fagradalsfjall og fannst hann víða um suðvestanvert landið - vestur í Búðardal og austur að Hvolsvelli. Að sögn veðurstofu fylgdi fjöldi eftirskjálfta í kjölfarið, sá stærsti 4,3 stig og fannst hann einnig víða. Um kvöldið 30. maí fór að draga úr fjölda jarðskjálfta, en enn mælist einhver virkni á svæðinu. Lítil skjálftavirkni var á Reykjaneshrygg í maímánuði. Vestan og sunnan við Kleifarvatn á Reykjanesskaga var viðvarandi skjálftavirkni allan mánuðinn. Á Suðurlandi mældist mest af jarðskjálftum á Krosssprungunni sunnanverðri. Stærsti jarðskjálftinn, 2,7 stig, varð 8. maí og fannst hann á svæðinu. Hátt í 30 skjálftar voru staðsettir í Mýrdalsjökli, flestir í vesturjöklinum og var sá stærsti um 2,5 stig. Nokkrir smáskjálftar mældust í Eyjafjallajökli og nokkuð jöfn skjálftavirkni var á Torfajökulssvæðinu. Undir Vatnajökli mældust yfir hundrað jarðskjálftar. Mesta virknin var við Bárðarbungu og Kistufell í norðanverðum jöklinum. Stærstu jarðskjálftarnir voru tæplega þrjú stig. Einnig mældust nokkrir ísskjálftar af og til í Skeiðarárjökli. Á svæðinu norður af Vatnajökli mældust yfir 100 jarðskjálftar, þeir stærstu rúmlega tvö stig. Mesta virknin var norður af Upptyppingum. Yfir 200 jarðskjálftar mældust norður af landinu í maí. Tvö svæði voru virkari en önnur, um 35 kílómetra norður af Grímsey og í Öxarfirði. Stærstu jarðskjálftarnir voru um þrjú stig.
Mest lesið Tæpum fjögur hundruð þúsund krónum eytt í vorgjöf Innlent Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Erlent Sakborningar í Gufunesmálinu mættir í Landsrétt Innlent Hæstiréttur hlýðir ekki á Jón Þór Innlent Gert að greiða miskabætur eftir að hafa nauðgað táningsstúlku Innlent Skjálfti vegna Írisar innan Sjálfstæðisflokksins í Eyjum Innlent Bein útsending: Inga ávarpar kennara sem ráða ráðum sínum Innlent „Það gerist ekkert ef ljósin eru slökkt“ Innlent Sjálfkjörið á Vopnafirði Innlent Segir viðræður mögulega hefjast á ný á næstu dögum Erlent Fleiri fréttir Matarstefnan bara „orð út í loftið“ Töldu framboðinu ekki til framdráttar að mæta í þáttinn Verð á stökum miða í sund hækkar en árskortið lækkar Árni vill stöðuna þrátt fyrir auglýsingu Skjálfti vegna Írisar innan Sjálfstæðisflokksins í Eyjum Sakborningar í Gufunesmálinu mættir í Landsrétt Bein útsending: Inga ávarpar kennara sem ráða ráðum sínum Hæstiréttur hlýðir ekki á Jón Þór Gert að greiða miskabætur eftir að hafa nauðgað táningsstúlku Sjálfkjörið á Vopnafirði Logi tekur undir mótmæli gegn þátttöku Rússa á Feneyjatvíæringnum Tæpum fjögur hundruð þúsund krónum eytt í vorgjöf Tvö erindi borist Þingvallanefnd vegna tónleika Kaleo „Það gerist ekkert ef ljósin eru slökkt“ Ný atvinnustefna vanmeti stærstu tæknibreytingu samtímans Eftirför lögreglu endaði á Sorpu Tveir handteknu starfsmenn Eimskipa Skorað á Guðmund að snúa aftur heim Slagsmál, falsað ökuskírteini og ölvunarakstur Keyrðu utan í bílinn í eftirförinni Endurskoða gjaldsvæði borgarinnar Verulegt magn fíkniefna og hönnunarbolli í vorgjöf Flogið til Vestmannaeyja til mánaðamóta „Þyngra fyrir fæti að fá vinnu“ Hælisleitendamálin settu þrýsting á Reykjanesbæ Vilja verða áheyrnarfulltrúar og hækka laun sín gríðarlega Unnar kjötvörur af matseðli í skólum: „Stranglega bannað að hafa pylsupartý“ Sex handteknir og um verulegt magn sterkra efna að ræða Ekki hægt að taka framboð gilt þó flokkur misskilji reglur Góðkunninginn í vikulangt gæsluvarðhald vegna smygls Sjá meira