Raddir fólksins þagna ekki 23. janúar 2009 19:26 Hörður Torfason hefur verið í forsvari fyrir Raddir fólksins. MYND/Heiða
Raddir fólksins, sem staðið hafa fyrir mótmælum undanfarna laugardaga á Austurvelli láta ekki deigan síga þrátt fyrir að forystumenn ríkisstjórnarinnar hafi boðað kosningar í vor. Sextándi mótmælafundur Radda fólksins verður haldinn á Austurvelli laugardaginn 24. janúar næstkomandi og hefst hann klukkan þrjú. Í tilkynningu frá samtökunum segir að þau harmi alvarleg veikindi Geirs H. Haarde forsætisráðherra og óski honum velfarnaðar og góðs bata. „Við fögnum velheppnaðri aðgerð á Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur utanríkisráðherra og bjóðum hana velkomna heim." Þá segir að ljóst sé að stuðningsmenn friðsamlegra mótmæla hafa unnið þrekvirki. „Þúsundir mótmælenda hafa mótmælt vanhæfri ríkisstjórn látlaust síðustu daga og viðbrögð grasrótarinnar í Samfylkingunni bera þess ótvíræð merki að síðustu dagar þessarar valdstjórnar eru að renna upp. Þrátt fyrir áfangasigur með yfirlýsingu um kosningar 9. maí nk. má ekki slaka á. Þjóðin getur ekki búið við vanhæfa ríkisstjórn deginum lengur. Sömu stjórnirnar sitja sem fastast í Seðlabanka og Fjármálaeftirliti og útrásarvíkingarnir leika lausum hala. Sameinumst um að reka endahnút á siðleysi og spillingu - hefjum vorhreingerningar í íslenska stjórnkerfinu." Ávörp og ræður: · Magnús Björn Ólafsson, blaðamaður · Hildur Helga Sigurðardóttir, blaðamaður · Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, stjórnsýslufræðingur · Guðmundur Andri Thorsson, rithöfundur Fundarstjóri er Hörður Torfason
Mest lesið Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Innlent Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Innlent Berserksgangur á gististað Innlent Með lista yfir góða og slæma bandamenn Erlent Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Innlent Fleiri fréttir Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Sjá meira