Kvennapókermót á Gullöldinni í dag 20. júní 2009 04:00 Svava í 17 er ein þeirra sem skráð er til leiks í miklu kvennapókermóti sem haldið verður í dag. „
Það er allt að gerast. Nokkrar flottustu konur landsins ætla að mæta. Það er bullandi áhugi fyrir þessu," segir Davíð Rúnarsson, knattspyrnu- og pókermaður. Í gær - kvenréttindadaginn - þegar Fréttablaðið heyrði í Davíð var hann í óðaönn að undirbúa sérstakt kvennapókermót sem á að fara fram klukkan tvö í dag á Gullöldinni í Grafarvogi. „Þarna verða þekktustu fótboltastjörnur landsins, söngkonur og tískudrottningar: DJ Sóley, Svava Johansen kennd við 17, Alexandra Helga Ívarsdóttir, sem var Ungfrú Ísland í fyrra, og nokkrar sem tóku þátt í Ungfrú Ísland í ár," segir Davíð. Mótið er lokað karlmönnum sem þó mega koma og horfa á. Ekki er algengt að konur taki þátt í pókermótum. Að sögn Davíðs eru kannski um tíu sem leggja stund á póker hér á landi. „Venjulega er þetta þannig að konur gefa spilin og við spilum. En nú ætlum við að fá einhverja heita „hönka" til að gefa og þær spila til tilbreytingar." Í gær var kvenréttindadagurinn haldinn hátíðlegur en í dag fer Kvennahlaupið fram og Davíð telur upplagt að þær hlaupi, komi svo til að fá sér einn kaldan og spila póker. Davíð, sem spilar fótbolta með úrvalsdeildarliði Þróttar, skipuleggur pókermót í frístundum. Og á Glóðinni í Keflavík er verið að koma upp pókerbækistöð sem Davíð aðstoðar við að koma á koppinn. Ætlunin er að vera með föst pókermót öll fimmtu- og föstudagskvöld. Í gærkvöldi mættu handboltakempurnar Logi Geirsson, Aron Pálmarsson og Sigfús Sigurðsson til að keppa sín á milli og við aðra í póker.
Mest lesið Hvað veistu um… árið 2010? Lífið Guðrún Ýr og Birnir í eina sæng Tónlist „Það má herma“ Tíska og hönnun Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Lífið „Ég var löngu tilbúin að giftast honum“ Lífið Pissaði fyrir framan fólk í sjö klukkutíma á dag Menning Áhugi leshringja svo mikill að Salka stækkar Lífið samstarf Rassaumhirða karla í sókn Lífið Stelpurnar í Kjólum og konfekti spá fyrir um úrslit HM Tíska og hönnun Sjö heitustu brúðkaupstrendin í sumar Lífið Fleiri fréttir Hvað veistu um… árið 2010? Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Sjö heitustu brúðkaupstrendin í sumar „Ég var löngu tilbúin að giftast honum“ Rassaumhirða karla í sókn Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Hætt saman en ennþá vinir Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lára Clausen lýsir eftir stolnum Mustang Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Huggulegustu hommar landsins „loksins“ giftir Adam Páls fann ástina í örmum Moniku Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Myndaveisla: Líf og fjör úti á Granda Hringdi strax í pabba og sagði honum frá Bond-leiknum Krakkatía vikunnar: Jónas, þjóðardýr og einmanalegt áhugamál Verður yngsta skvettan í þingflokki Sjálfstæðismanna Vesturbæingar kvöddu sögufræga bensínstöð Allt að verða klárt fyrir Sjómannadaginn í Reykjavík Allir og amma þeirra senda kónginum afmæliskveðju Fann ástina á Tinder og endaði í Texas Þegar tónlistin heltók lögmanninn Fréttatía vikunnar: Dua, Danir og Carpenter Anthony Head er látinn Emilíana Torrini selur einbýlishús á 250 milljónir „Aldrei of seint að gera hlutina“ Sjá meira