Innlent

Flokkstjórnarfundi Samfylkingar frestað

Hluti þingmanna Samfylkingar.
Hluti þingmanna Samfylkingar.

Flokkstjórnarfundi Samfylkingarinnar sem átti að hefjast klukkan 11:00 í morgun hefur verið frestað þar til annað kemur í ljós. Flokksfélagar eru beðnir að fylgjast með.

Stefnt var að því að kynna væntanlegan stjórnarsáttmála Samfylkingar og VG á fundinum en athugasemdir Framsóknarflokksins við þær áætlanir hafa tafið ferlið.

Síðan var stefnt að því kynna nýja ríkisstjórn eftir fundi flokkanna í morgun, en þær áætlanir eru í uppnámi. Fundað var stíft hjá flokkunum í gærkvöldi og fram á nótt.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×