Jólaverslun stefnir í 13,4 milljarða 27. nóvember 2009 02:30 Jólaös í Kringlunni Í könnun Rannsóknaseturs verslunarinnar kemur fram að algengast sé að hver fullorðinn verji um 25 til 75 þúsund krónum til jólagjafakaupa. Fréttablaðið/Anton
Gert er ráð fyrir að jólaverslunin verði óbreytt frá síðasta ári að magni til, en vegna verðhækkana verði veltan átta prósentum meiri í krónum talið. Þetta kemur fram í árlegri spá Rannsóknaseturs verslunarinnar. Fram kemur að í fyrra hafi jólaverslun á föstu verðlagi dregist saman um 18,3 prósent milli ára, en í fjögur ár þar á undan hafi árlegur vöxtur jólaverslunarinnar að meðaltali numið 7,3 prósentum. Í inngangi sérrits um jólainnkaupin segir Emil B. Karlsson, forstöðumaður Rannsóknasetursins, spár um jólaverslunina vera hóflegar. „Aðstæður í efnahagslífinu og þróun einkaneyslu gefa ekki tilefni til mikillar bjartsýni um aukinn munað fyrir þessi jól eins og oft áður. Önnur gildi hafa rutt sér til rúms, sem felast í því að þegar magnið minnkar aukast gæðin." segir hann. Í skýrslunni er áætlað að velta í smásöluverslun sem rekja megi til jólanna nemi um 13,4 milljörðum króna. Það jafngildir því að hver Íslendingur verji að jafnaði næstum 42.000 krónum til jólainnkaupa. Í fyrra var upphæðin 38.600 krónur. Í könnun kemur fram að fólk byrji nú fyrr á jólainnkaupum en áður og dreifi þeim jafnvel á allt árið. Þá versla fleiri á netinu fyrir þessi jól en áður hefur verið. - óká
Mest lesið Lúsmýið yrði alltaf verra en moskítóflugan Innlent Lögreglumál: Sátu fastir eftir að slökkt var á parísarhjólinu Innlent Hætta sölu til Japan: Hvalkjötið nýtt í framleiðslu fæðubótarefnis Innlent Viðreisn fjarlægir bænina af Facebook: „Við viljum ekki særa fólk“ Innlent Aðalmeðferð hefst í Reykholtsmálinu Innlent Brotist inn í garnverslun í Árbæ Innlent „Þá er verið að hugsa um mögulegt viðbragð í neyðarástandi“ Innlent Úkraína gæti átt heimasmíðaðar skotflaugar innan nokkurra mánaða Erlent Gerir upp hús hannað af Guðjóni Samúelssyni Innlent Á sjötta tug björgunarsveitarfólks kom að björguninni Innlent Fleiri fréttir Bogi Ísak Nilsson er látinn Fyrsta skrefið í að kenna Íslendingum að nota fánann við fleiri tilefni Brotist inn í garnverslun í Árbæ Aðalmeðferð hefst í Reykholtsmálinu Hætta sölu til Japan: Hvalkjötið nýtt í framleiðslu fæðubótarefnis Lögreglumál: Sátu fastir eftir að slökkt var á parísarhjólinu Lúsmýið yrði alltaf verra en moskítóflugan Viðreisn fjarlægir bænina af Facebook: „Við viljum ekki særa fólk“ Gerir upp hús hannað af Guðjóni Samúelssyni Á sjötta tug björgunarsveitarfólks kom að björguninni Ekki fleiri tilkynnt innbrot síðan 2022 „Þá er verið að hugsa um mögulegt viðbragð í neyðarástandi“ Þyrla Landhelgisgæslunnar kölluð út vegna veikinda Forystumenn láti stór orð falla sér og sínum málstað til framdráttar Þyrlan sótti slasaðan göngumann við Glym Spánverjum fjölgar þvert á þróunina Sigurgeir þurfti að hætta og var fluttur á sjúkrahús Það er jóker í spilinu Skoða hvort gerviaðgangar og grunsamlegar síður séu erlend öfl í dulbúningi Páll Magnússon tekur við af Kristjáni Nágranninn bjargaði Sævari sem missti næstum af almyrkvanum Brotist inn í Barnaloppuna Kristján Kristjánsson kveður Sprengisand Íbúi í Kænugarði um stríðið og áhyggjur lögreglu af erlendum áhrifum á ESB-kosningu Fortíð og framtíð Íslands í Evrópu á Sprengisandi Mundaði stólinn og lamdi gesti „Bara, hvað dettur gömlu fólki í hug að gera?“ Þrengja Reykjaveg og loka tveimur götum við Laugarnesskóla Fjöldi ökumanna á von á kæru Ísraelskir ferðamenn með ógnandi tilburði á palestínsku kaffihúsi Sjá meira