Öll skerðing kemur við grunnþjónustu 27. nóvember 2009 04:30 Næringin kærkomna Grunnþjónusta leikskóla felst meðal annars í því að ala upp og næra börnin, segir Margrét Pála. Skilgreiningin er ekki til hjá borginni. Fréttablaðið/auðunn
Í fyrirhuguðum 580 milljóna niðurskurði til leikskóla borgarinnar verður grunnþjónustan ekki skorin niður, segja fulltrúar leikskólasviðs borgarinnar. Þessi fullyrðing er hins vegar óraunhæf, að mati Margrétar Pálu Ólafsdóttur, formanns Samtaka sjálfstæðra skóla og höfundar Hjallastefnunnar. „Umræða um að ekki eigi að skerða grunnþjónustu er í raun óraunhæf yfirlýsing, því leikskólarnir sinna bara grunnþjónustu. Þetta er uppeldi og menntun ungra barna, gæsluhlutverk gagnvart foreldrum og máltíðir. Nánast allur kostnaður leikskóla er launakostnaður og mötuneyti. Allt annað er hverfandi. Svo mikið veit ég,“ segir hún. Opinber skilgreining á þessu hugtaki, grunnþjónusta til leikskólabarna, er hvergi til staðar hjá borginni, staðfestir Ragnar Sær Ragnarsson, formaður leikskólaráðs. Unnið sé að skilgreiningu á vegum borgar og Sambands sveitarfélaga, „en það er ekki til beinlínis formleg skilgreining“. Edda Björk Þórðardóttir, í foreldraráði leikskólans Hamra, lýsti þessu hér í blaðinu hinn 23. nóvember sem dæmi um metnaðarleysi hjá borginni. Í fundargerð af samráðsfundi leikskólasviðs með foreldrum leikskólabarna 12. nóvember kemur fram að fulltrúar borgarinnar hafi heitið því að tryggja grunnþjónustu. Fulltrúarnir hafi svo staðið á gati þegar foreldrar spurðu um hvað væri grunnþjónusta. Um fyrirhugaðan niðurskurð segist Margrét Pála skilja að reynt sé að klípa af leikskólum eins og annars staðar. „En það er erfitt að skera niður kerfi sem aldrei var í neinu góðæri. Það vita allir sem þekkja til leikskólastarfs á Íslandi að þar er alltaf haldið mjög spart á. Þess vegna finna þessar stofnanir meira fyrir niðurskurði en hinar, sem voru betur staddar í góðærinu,“ segir hún. Þess má geta að orðið „grunnþjónusta“ er ekki að finna í lögum um leikskóla. klemens@frettabladid.is Ragnar Sær Ragnarsson
Mest lesið Bó kvaddur í hinsta sinn Innlent Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Innlent „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Innlent Helstu augnablikin úr útför Björgvins Halldórssonar Innlent Afhroð Rússa í Malí: Vígamenn segjast stjórna stórum hluta landsins Erlent Fyrrverandi forstjóri FBI ákærður fyrir líflátshótun í garð Trump Erlent Atli og Sunna nýir fréttastjórar og Árni varafréttastjóri Innlent Algengt að krafa sé gerð í sambandi um að deila stöðugt staðsetningu Innlent Þingmenn klöppuðu óspart fyrir konunginum Erlent Að óbreyttu muni umferðin halda áfram að þyngjast Innlent Fleiri fréttir Algengt að krafa sé gerð í sambandi um að deila stöðugt staðsetningu Verðbólgan hjaðnar og vandræði í Landeyjahöfn Halda til Svíþjóðar í afmælisveislu Atli og Sunna nýir fréttastjórar og Árni varafréttastjóri Kosningapallborð fréttastofu: Glæný skoðanakönnun kynnt fyrir Hafnarfjörð Sænska lögreglan reynir að uppræta „glæpamenn til leigu“ Systkinaforgangur og heimgreiðslur á lista margra framboða í Reykjavík „Mögulegt heimilisofbeldi“ reyndist tölvuleikur Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Að óbreyttu muni umferðin halda áfram að þyngjast Hitaveitur gætu orðið veruleiki á Grænlandi „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Bó kvaddur í hinsta sinn Boða fjölgun flugferða á sama tíma og bátsferðir voru felldar niður Pílagrímaflug Air Atlanta á fullri ferð þrátt fyrir átök Urðu fyrir vonbrigðum með húsnæðispakka tvö Helstu augnablikin úr útför Björgvins Halldórssonar Hnífstunga í heimahúsi í Árbæ Kvöddu þjóðargersemi með sögum og söng Fróaði sér úti og var gripinn með teiknað barnaníðsefni Eldgos enn líklegasta sviðsmyndin Meirihluti oddvita í glænýju hlutverki Jón Pétur Zimsen biðst afsökunar á færslu sinni Lögreglan á Austurlandi kom að handtöku fimmtíu Bó borinn til grafar: „Þegar kóngurinn kallar lætur maður sig ekki vanta“ „Botninum hefur verið náð“ Segja borgaryfirvöld hafa brugðist íbúum algjörlega Húsnæðispakki 2 kynntur og ófremdarástand hjá Herjólfi Boða allt að 1.400 íbúðir á lóðum ríkisins og í húsum þess „Nítján tíma ferðalag til að keppa sextíu mínútur í handbolta“ Sjá meira