Innlent

Persónuleg fjármál voru ekki það sem hindraði Lúðvík

Lúðvík Bergvinsson.
Lúðvík Bergvinsson.

Það var lögð áhersla á að fá utanaðkomandi fagaðila til þess að gegna embætti ráðherra bankamála og dómsmálaráðherra frá upphafi stjórnarmyndunarviðræðna Samfylkingarinnar og Vinstrihreyfingarinnar-græns framboðs. Þetta segir Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra í yfirlýsingu í tilefni af fréttaflutningi af fjármálum Lúðvíks Bergvinssonar, formanns þingflokks Samfylkingarinnar.

Í grein í Morgunblaðinu í dag er fjallað um fjármál Lúðvíks og fullyrt að staða þeirra skýri að hann gegni ekki embætti dóms- og kirkjumálaráðherra. Jóhanna segir að þessi fullyrðing sé ekki sannleikanum samkvæm.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×