Guðjón Arnar fær mótframboð í formanninn 28. febrúar 2009 16:29 Guðni Halldórsson
Guðni Halldórsson 35 ára viðskiptalögfræðingur hefur ákveðið að gefa kost á sér til formennsku í Frjálslynda flokknum á landsþingi flokksins sem haldið verður í Stykkihsólmi dagana 13.-14. mars nk. Hann hefur einnig ákveðið að bjóða sig fram í efsta sætið í prófkjöri Frjálslynda flokksins í Norðvesturkjördæmi sem fram fer vikuna 2.-8. mars nk. „Ljóst er að miklir umbrotatímar eru í íslensku samfélagi. Sjaldan eða aldrei hefur verið mikilvægara en að íslenska þjóðin standi saman í þeim erfiðleikum sem öllum eru ljósir. Til þess þarf að veljast nýtt fólk til forystu í íslenskum stjórnmálum," segir Guðni í tilkynningu. „Ég vil beita mér fyrir því að koma Frjálslynda flokknum í fremstu röð í íslenskum stjórnmálum. Til þess þarf ég stuðning og styrka hönd félagsmanna á landsfundinum og þátttöku kjósenda í því prófkjöri sem framundan er. Átök innan þingflokks Frjálslynda flokksins og flokksins sjálfs á undanförnum árum, hafa ekki orðið til þess að auka við fylgi hans né trúverðugleika. Ég tel að sátt þurfi að nást um nýjan formann sem hefur ekki tekið þátt í innra starfi flokksins og átökum á undanförnum árum. Ég legg áherslu á að skapa fjölskyldum og einstaklingum sanngjarnt samfélag með lægri sköttum og jafnri stöðu þeirra innan bótakerfisins, ég legg til að lækkaðir verði tekjuskattar á einstaklinga og fyrirtæki um helming, hafnar verði viðræður við helstu viðskiptalönd Íslands um upptöku nýs gjaldmiðils þjóðarinnar auk þess sem ég tel að skoða beri inngöngu Íslands í NAFTA. Þá hef ég það að stefnumáli fyrir komandi kosningar að flokkurinn beiti sér fyrir því að afskrifa allar skuldir hér á landi um a.m.k. 25% óháð uppruna þeirra og það eigi við jafnt um einstaklinga og fyrirtæki. Ég hef ákveðið að eyða engum peningum í prófkjörsframboð mitt og hvet aðra frambjóðendur til hins sama."
Mest lesið „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Innlent Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Innlent Fólki ráðlagt að fylgjast vel með veðurspám Veður Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent Trump vill ekki flýta sér Erlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Innlent „Ekki í lífshættu“ Innlent Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Innlent „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ Innlent Fleiri fréttir Jarðskjálfti við Bárðarbungu í nótt „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Sjá meira