Þriðja flensutilfellið: Eiginkonan smitaðist líka 10. júní 2009 11:48
Þriðja tilfelli inflúensu A (H1N1) greindist á Íslandi í gærkvöld. Þar er um að ræða eiginkonu karlmannsins sem greindist með veikina í fyrradag og sagt var frá í tilkynningu sóttvarnalæknis og almannavarnadeildar í gærmorgun. Fullvíst er talið að hjónin hafi smitast í Bandaríkjunum. Þaðan komu þau til Íslands fyrir réttri viku, miðvikudaginn 3. júní. Þau veiktust bæði en ekki alvarlega. Þetta kemur fram í tilkynningu frá sóttvarnalækni og almannavarnadeildar. Þá segir að sameiginlegt sé með öllum þremur inflúensutilfellunum, sem greinst hafa hérlendis, að viðkomandi komu hingað frá Bandaríkjunum. Enn sem komið er hefur ekki greinst smit milli manna á Íslandi. Búast má við að inflúensan breiðist út hér á landi á næstu vikum og mánuðum en þar sem sýkingin er ekki alvarlegri en hefðbundin árleg inflúensa er viðbúnaður hérlendis óbreyttur. Mikilvægt er að fylgjast vel með útbreiðslu inflúensunnar hér á landi því öll vitneskja um sjúkdóminn er nauðsynleg þegar metið er til hvaða viðbragða skuli grípa í framtíðinni. Læknar eru því áfram hvattir til að senda sýni til greiningar frá sjúklingum sem taldir eru vera með inflúensu. Áfram er unnið að samhæfingu viðbragðsaðila þar að lútandi, meðal annars með svæðisáætlunum sem ræddar eru þessa dagana um allt land á fundum á vegum sóttvarnalæknis og almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra. Slíkur fundur var til dæmis á dagskrá í Reykjavík núna fyrir hádegið í dag, miðvikudag.
Mest lesið Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Innlent Fjölskyldur hafi þegar hætt við að flytja aftur til Grindavíkur Innlent „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Innlent Tryggvi Gíslason er látinn Innlent Stefna á að opna kaffistofuna síðar í þessum mánuði Innlent Marius sleppur ekki eftir allt saman Erlent Vegasjoppan sem byggði kamar fyrir Kristján tíunda Innlent Gerir Repúblikönum á þingi enn lífið leitt Erlent „Þetta er hreinn uppspuni“ Innlent Íranir gerðu hefndarárásir á herstöðvar í nágrannaríkjunum Erlent Fleiri fréttir Starfsleyfi takmarkað vegna lyfjaávísana Leiðtogaskipti hjá Sósíalistaflokknum Bein útsending: Ræða öryggis- og stjórnmálasamstarf á Eystrasaltssvæðinu Fjölskyldur hafi þegar hætt við að flytja aftur til Grindavíkur Eldhúsdagur runninn upp Fræsa og malbika Reykjanesbraut við Smáralind í kvöld Tryggvi Gíslason er látinn Öskur, reykelsisfnykur, greiðslufall og gámarót Stefna á að opna kaffistofuna síðar í þessum mánuði Samþykkt frumvarpsins framkalli ekki sigurtilfinningu Vegasjoppan sem byggði kamar fyrir Kristján tíunda Hlekktist í lendingu á Egilsstaðaflugvelli Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Sósíalisti fékk boðsferð til Kína Olíumengun í Kópavogslæk „Netglæpamenn munu nýta sér þetta hratt og á skaðlegan hátt“ No Borders hvetja til andspyrnu gegn brottfararstöð Hringbraut eins og rússnesk rúlletta Handtekinn á bíl með nagladekkjum „Þetta er hreinn uppspuni“ Fjöldi netbrota fjórfaldast og dómsmálaráðherra í beinni um brottfararstöð „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Umdeild brottfararstöð leidd í lög Fimm úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald Hætta aftur rannsókn á Múlaborgarmálum Íbúar á flæðiskeri staddir eftir samdrátt í umsvifum Icelandair Telja Ríkisútvarpið bullandi hlutdrægt í ESB-málinu Landris og kvikusöfnun heldur áfram Trúir ekki öðru en að nýir herrar fjarlægi „níðstöngina“ Enginn þurfi að óttast að vera skilinn frá maka sínum Sjá meira