Mega byggja á umdeildri sjávarlóð 27. október 2009 05:00 Hjónin sem eiga Miðskóga 8 hafa um árabil reynt að fá að byggja hús á sjávarlóðinni. Einn angi málsins teygir sig yfir á lóðina fyrir aftan þar sem fyrrverandi forseti bæjarstjórnar býr. Hjónin saka hann um nafnlausan óhróður á netinu og reka meiðyrðamál gegn honum fyrir dómstólum.Fréttablaðið/Arnþór
Bæjarstjórn Álftaness hafði ekki málefnalegar ástæður til að synja eigendum sjávarlóðarinnar á Miðskógum 8 um byggingarleyfi fyrir einbýlishúsi. Þetta er niðurstaða úrskurðarnefndar skipulags- og byggingarmála. Eigendur Miðskóga 8 sóttu fyrst um byggingarleyfi í janúar 2006 og aftur í maí 2008 eftir að Hæstiréttur hafði sagt lóð þeirra vera byggingarlóð samkvæmt deiliskipulagi frá 1981. Bæjarstjórnin kvaðst telja að þetta skipulag væri ekki í gildi. Þessu hafnaði bæði Hæstiréttur og nú úrskurðarnefnd skipulags- og byggingarmála. Í fyrri byggingarleyfisumsókninni var hins vegar gert ráð fyrir of mikilli þakhæð og var hún lækkuð í seinni umsókninni. Úrskurðarnefndin hafnar þeim rökum bæjaryfirvalda að gólfhæð nýja hússins verði tuttugu sentimetrum of lágt yfir sjávarmáli. Nefndin segir ákvæði um 5,20 metra hæð yfir sjávarmáli aðeins eiga við í nýjum hverfum. Þá var heldur ekki fallist á að verndun strandsvæða, gerð göngustíga eða fráveita ætti að standa í vegi fyrir því að byggt yrði á lóðinni. „Er fullljóst að engin friðlýsing er í gildi um lóðina og af meðalhófsreglu leiðir að sveitarfélaginu bar að leita leiða til að ná fram markmiðum um göngustíga og fráveitu með öðru og vægara móti en að meina kæranda að hagnýta sér lóð sína til byggingar. Væri það og andstætt jafnræðisreglu að synja einum lóðarhafa á deiliskipulögðu svæði um byggingarleyfi þar sem aðrir lóðarhafar hafa fengið byggingarleyfi í samræmi við gildandi skipulag án vandkvæða,“ segir úrskurðarnefndin og bætir við að synjunin hafi verið „ólögmæt og ekki reist á málefnalegum grundvelli“. Úrskurðarnefndin fellir einnig úr gildi nýtt deiliskipulag frá í apríl á þessu ári þar sem umrædd byggingarlóð var felld út. Hlédís Sveinsdóttir, einn eigenda Miðskóga 8, kveðst vonast til að fljótt og vel verði greitt úr málinu með núverandi meirihluta á Álftanesi. „Auðvitað er draumurinn um að byggja framtíðarheimilið á lóðinni okkar á Álftanesi enn til staðar, þar liggja rætur mínar en föðurfólkið mitt bjó þar fram á seinni hluta 20. aldar og stofnaði meðal annars fyrsta barnaskóla landsins að Hausastöðum.“ Bæjarráðið hefur vísað byggingarleyfisumsókninni til nýrrar málsmeðferðar hjá skipulags- og byggingarnefnd sveitarfélagsins.gar@frettabladid.is
Mest lesið Hnífstunga á Austurvelli Innlent „Lít niður á alla þessa dópista sem mér er meint að hafa selt vopn“ Innlent Bóndinn á bænum kom slökkviliðsmönnum til hjálpar Innlent Þorgerður til í fund og það strax Innlent Lögregla og sérsveit handtóku fimm vegna gruns um frelsissviptingu Innlent Einum vísað til Albaníu en þrír enn í varðhaldi Innlent Grunaður um að sparka ítrekað í höfuð samfanga Innlent Sérsveitin kölluð út í miðbæ Akureyrar Innlent Hjólreiðamaður féll í Reykjadölum Innlent Tæplega þrjátíu slasaðir eftir að bíl var ekið í mannfjölda í Hollywood Erlent Fleiri fréttir Leikrit ríkisstjórnarinnar og hnífamaður flúði í strætó Hnífstunga á Austurvelli „Lít niður á alla þessa dópista sem mér er meint að hafa selt vopn“ Grunaður um að sparka ítrekað í höfuð samfanga Einum vísað til Albaníu en þrír enn í varðhaldi Allt að gerast á Húnavöku á Blönduósi um helgina Þorgerður til í fund og það strax Ráðherra bregst snögglega við og mikið stuð í Húnabyggð Hjólreiðamaður féll í Reykjadölum Lögregla og sérsveit handtóku fimm vegna gruns um frelsissviptingu Björgunarmenn sigu með fólk niður fjall við Ólafsfjörð Ógnuðu húsráðanda með hnífum og kylfum Bóndinn á bænum kom slökkviliðsmönnum til hjálpar Gosmóðan heldur áfram Sérsveitin kölluð út í miðbæ Akureyrar Mælirinn fullur hjá rekstraraðilum í Grindavík sem ætla í hart Upplifa eitthvað nýtt og eignast nýja vini Grátrana vappaði um í Gunnarsholti Íslenskur fjárhundur á Bessastaði? Krefst fundar með utanríkisráðherra án tafar Mygla fannst á bæjarskrifstofunum Minnihlutinn verði bara að treysta þjóðinni Litlu mátti muna: Glannalegur framúrakstur í Hörgárdal Málsókn Grindvíkinga, heimóttarskapur og heimkoma í beinni Glerflöskur stranglega bannaðar á Þjóðhátíð Dæmdur fyrir að flytja kratom til landsins Fundu fleiri vopn og handtóku suma á skemmtun á Selfossi Fréttu af andláti föður síns eftir að hann var jarðsettur Ógnaði lífi vegfarenda og lögreglu með ofsaakstri í Hafnarfirði Var ekki að láta undan þrýstingi Grindvíkinga Sjá meira