Háskólasjóður rýrnaði um þriðjung 19. janúar 2009 18:32
Háskólasjóður Eimskipafélags Íslands rýrnaði um þriðjung í bankahruninu. Sjóðurinn var stofnaður árið 1964 og er honum ætlað stuðla að velgengni Háskóla íslands og styrkja efnilega stúdenta til náms. Í honum voru rétt rúmir þrír milljarðar í september síðastliðnum en nú eru í honum rúmir tveir milljarðar. Sjóðurinn var stofnaður til minningar um Vestur-Íslendinga sem hlut áttu í stofnun Eimskipafélagsins. Stofneign sjóðsins voru hlutabréf í Eimskipafélaginu allt til ársins 2005 þegar Björgólfur Guðmundsson, sem þá var orðinn aðaleigandi Eimskips, gerði samning við Háskólann um að Landsbankinn tæki sjóðinn í sína vörslu og ávaxtaði hann. Þá voru eignir sjóðsins metnar á um tvo milljarða. Sjóðurinn óx jafnt og þétt í vörslu Landsbankans árin 2006 og 2007 og fyrri hluta árs 2008 og var þá orðinn 3250 milljónir þrátt fyrir að hafa veitt um 700 milljónum í styrki og verkefni á vegum háskólans. Sjóðurinn tók á sig mikið högg í bankahruninu og rýrnaði um meira en þriðjung. Aðallega vegna taps á peningamarkaðsbréfum Landsbankans. Sjóðurinn er nú um tveir milljarðar. Og tapið fyrir Háskólann því einn milljarður króna. Það er stjórn Háskólasjóðs Eimskipafélagsins sem ber ábyrgð á fjárfestingastefnu hans. Í stjórninni sitja þeir Björgólfur Guðmundsson, Halldór J. Kristjánsson fyrrverandi bankastjóri í Landsbankanum og Kjartan Gunnarsson fyrrverandi framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins og bankaráðsmaður í Landsbankanum.
Mest lesið Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Erlent Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Innlent Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Innlent Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Innlent Lánið í höfn og Harry veitir Trump óumbeðin ráð Erlent Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Innlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Innlent Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Fleiri fréttir Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Sjá meira