Siðlausir umhverfisþrjótar skjóta kynblending steypireyðar Kristján Már Unnarsson skrifar 4. maí 2009 18:59 Íslendingar eru siðlausir umhverfisþrjótar að mati National Geographic.
Íslendingar eru útmálaðir sem siðlausir umhverfisþrjótar í þætti sem National Geographic-sjónvarpsstöðin sýnir nú um gervallan heim. Þar er sagt að Íslendingar hafi drepið kynblending steypireyðar og langreyðar og selt kjötið á Japansmarkað.Konungsríki steypireyðarinnar heitir þátturinn. Milli þess sem fagrar myndir eru sýndar af þessu stærsta dýri sem lifað hefur á jörðinni er fylgst með útsendurum þáttarins leita að vísbendingum á japönskum fiskmarkaði um að einhverjir þrjótar víli ekki fyrir sér að drepa steypireyði og selja ólöglega en hún er alfriðuð.Útsendararnir kaupa hvalkjöt í Tókýó, læsa sig inni á hótelherbergi og setja þar upp rannsóknarstofu til að greina sýnið enda tekið fram að stranglega sé bannað að flytja afurðir dýra í útrýmingarhættu á milli landa. DNA greining stemmir við steypireyði en.. kjötið reynist af enn sjaldgæfara fyrirbæri, kynblendingi steypireyðar og langreyðar.Sjónvarpsmennirnir leita upprunans; það voru Íslendingar sem skutu hvalinn og seldu til Japans sem langreyði. Rætt er við Gísla Víkingsson hvalasérfræðing sem útskýrir að kynblendingurinn líktist langreyði á bakinu.Áhorfendur fá þá tilfinningu að þetta sé nýlegt dæmi en hér er í raun um tuttugu ára gamlan atburð að ræða. Gísli sagði í samtali við Stöð 2 í dag að þá hafi í fyrsta sinn í heiminum verið sýnt fram á kynblöndun milli þessara stofna og stórhvala yfirleitt. Þetta hafi þótt mjög merkilegt og tvær greinar verið gefnar út um þetta í vísindartímaritum.Fréttir um þessa kyndblendingsveiði Íslendinga birtust raunar einnig í heimspressunni fyrir tíu árum en hérlendis hafa menn greint fjóra slíka hvali til þessa.Gísli segir það mjög sérkennilegt viðhorf að það sé jafnvel enn meiri glæpur að veiða blendinga heldur en steypireyði því yfirleitt séu blendingar flokkaðir til einskonar mistaka í náttúrunni.Hvað sem líður útskýringum er hætt við að áhorfendur náttúrulífsþáttarins hugsi ekki hlýlega til Íslendinga á næstunni.
Mest lesið Stígur fram sem „alræmdur faðir“ í Vesturbænum Innlent Mikill munur á fjölda útskrifaðra úr framhaldsskóla eftir grunnskólum Innlent Þrjú hundruð sagt upp hjá Berjaya Innlent Þarf að greiða hálfa milljón úr eigin vasa vegna B5 Innlent Veit ekki hvort hann hafi misst tökin á öldungadeildinni Erlent Lokanir í Hvalfjarðargöngum um hvítasunnu Innlent Trump sendir 5.000 hermenn til Póllands Erlent Nýtti sér dauðvona mann i auglýsingaskyni Innlent Á hreinu að Valdimar hefði fengið bæjarstjórastólinn Innlent Björguðu húsi frá því að verða eldi að bráð Innlent Fleiri fréttir Á hreinu að Valdimar hefði fengið bæjarstjórastólinn Áratuga fjársvelti námsgagna bitni á skólastarfi á öllum stigum Lokanir í Hvalfjarðargöngum um hvítasunnu „Það sem við hófum árið 1986 ætlum við að klára árið 2026“ Stígur fram sem „alræmdur faðir“ í Vesturbænum Vætusamt veður fram á mánudag Mikill munur á fjölda útskrifaðra úr framhaldsskóla eftir grunnskólum Björguðu húsi frá því að verða eldi að bráð Flugmenn gleyma því að þeir séu í flughermi Einn fluttur á slysadeild eftir mótorhjólaslys Þarf að greiða hálfa milljón úr eigin vasa vegna B5 Fær 5,7 milljónir af því að kona var ráðin en ekki hann Þrjú hundruð sagt upp hjá Berjaya Prince setti svip sinn á tveggja milljóna verk Nýtti sér dauðvona mann i auglýsingaskyni Dramatík í Hafnarfirði Mikil leynd ríkir yfir smáatriðunum Vilhjálmur verður bæjarstjóri „Ég er ekki nógu góður í slíkri skák“ Skraf Sjálfstæðismanna í húsi Snarfara Gabríel Douane fær tólf mánuði til: „Fjarstæðukennt“ að hann hafi óvart tekið símann Ráða verkefnisstjóra í málum Grindavíkur Hyggjast halda samstarfinu áfram Viðreisn líst hvorki á Framsókn né Miðflokk Kristinn verður áfram bæjarstjóri Valdimar hafnar alfarið fullyrðingum um trúnaðarbrest Ekkjan fór með fullnaðarsigur af hólmi í héraði Icelandair og flugmenn funda aftur í fyrramálið Berglind verður bæjarstjóri og Óðinn formaður bæjarráðs Inga skipar nýjan skólameistara Borgarholtsskóla Sjá meira