Innlent

Segir Íslendinga hafa misst sjálfræði í efnhagsmálum til AGS

 

Íslendingar hafa misst sjálfræði í efnhagsmálum til Alþjóðagjaldeyrissjóðsins að mati Ögmundar Jónassonar, heilbrigðisráðherra. Hann er ósáttur við vaxtastefnu sjóðsins.

Segja má að íslensk stjórnvöld hafi afsalað sér vissum sveigjanleika í efnhagsmálum þegar þau tóku lán frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum.

 

Samkvæmt efnhagsáætlun þeirri sem íslensk stjórnvöld skuldbundu sig til að fylgja er stefnt að því að draga úr ríkisútgjöldum um 170 milljarða króna á næstu þremur árum. Framgangur áætlunarinnar er endurskoðaður reglulega og hvíla áframhaldandi lánveitingar á því að íslensk stjórnvöld haldi sér innan ramma hennar.

Alþjóðagjaldeyrisjóðurinn hefur einnig óbein áhrif á vaxtaákvörðun Seðlabankans. Þannig lagðist sjóðurinn gegn vaxtalækkun í janúarmánuði síðastliðnum vegna tímabundinnar óvissu í íslenskum stjórnmálum.

Fjölmargir hafa gagnrýnt stefnu sjóðsins þar á meðal heilbrigðisráðherra sem segir að stærstu lánadrottnar Íslands hafi neytt ríkisstjórnina til að leita til sjóðsins. Mikilvægt sé að lækka stýrivexti sem fyrst.

„En við vitum að það er ekki vinsælt hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum og ég hygg að það sé samhenig á milli þessarar vaxtastefnu Seðlabankans og ábendinga frá AGS," segir Ögmundur, „við erum ekki að öllu leyti sjálfráð hvernig við höndlum þá erfiðu stöðu sem við erum í. Við þurfum að taka tillit til umhverfisins og hluti af þessu umhverfi er AGS sem er í náinni samvinnu við lánadrottna okkar. Við þurfum að vega og meta hvað er hægt að gera hverju sinni en ég er mjög ósáttur við þennan þátt í kröfugerð AGS."












Fleiri fréttir

Sjá meira


×