Innlent

Hætt verði við aukna hesthúsabyggð við Elliðaárnar

Ólafur F. Magnússon, borgarfulltrúi, vill fallið verði frá áformum um aukningu á hesthúsabyggð á svæði norðan Elliðaánna.
Ólafur F. Magnússon, borgarfulltrúi, vill fallið verði frá áformum um aukningu á hesthúsabyggð á svæði norðan Elliðaánna.
Ólafur F. Magnússon, borgarfulltrúi F-listans, vill að fallið verði frá áformum um aukningu á hesthúsabyggð á svæði norðan Elliðaánna, vestan Breiðholtsbrautar.

Tekist hefur verið á um málið síðustu vikur og 7. apríl kærði Stangveiðifélag Reykjavíkur deiliskipulag svæðisins. Tillaga Ólafs verður tekin fyrir á fundi borgarstjórnar í dag.

Ólafur telur brýnt að borgaryfirvöld leggi áherslu á varðveislu grænna útivistarsvæða í námunda við Elliðaárnar og að ekki verði tekin áhætta gagnvart verndun lífríkis Elliðaánna. Allri aukningu hesthúsabyggðar í borgarlandinu verði beint á önnur svæði.

Fagaðilar ekki kallaðir til

Í greinargerð með tillögunni segir Ólafur að ekki hafi verið orðið við óskum hans um að fagaðilar fræði fulltrúa í borgarráði, skipulagsráði og umhverfisráði, um þá hættu, sem lífríki Elliðaánna gæti stafað af hesthúsabyggðinni.

Ólafur segir að þvert á móti hafi meirihlutinn í borgarráði og skipulagsráði og þá einkum Júlíus Vífill Ingvarsson, formaður skipulagsráðs, unnið að því bak við tjöldin að draga úr augljósustu og stórkarlalegustu ágöllum hesthúsafyrirætlananna til að geta komið þeim í framkvæmd.

Ráðist að persónu Ólafs

„Formaður skipulagsráðs, Júlíus Vífill Ingvarsson, hefur beitt þeirri viðteknu starfsaðferð sumra borgarfulltrúa meirihlutans (ekki síst þeirra Óskars Bergssonar og Hönnu Birnu Kristjánsdóttur) að svara tillöguflytjanda ekki með rökum heldur með því að ráðast að persónu hans og trúverðugleika með upplognum aðdróttunum m.a. um heilsufar hans. Slík framkoma lýsir ótrúlegum fordómum og fáfræði þeirra sem hlut eiga að," segir í greinargerð Ólafs.

Ólafur segir að framkoman hafi vissulega fælingarmátt, en hún megi ekki verða til þess að fólk, sem hafi hugsjónir, treysti sér ekki til að starfa að málefnum Reykvíkinga sem kjörnir fulltrúar þeirra.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×