Tugir með kannabisrækt sem aðalstarf 17. júní 2009 08:00 Kannabisefni í ræktun.
Lögregla hefur upprætt fjörutíu kannabisræktanir á árinu, lagt þar hald á tæplega 7.000 plöntur og handtekið um sjötíu ræktendur. Talið er að langflestir þeirra hafi haft sinn aðalstarfa af kannabisframleiðslunni. Ræktendurnir eru flestir ungir karlmenn, ekki óreglumenn heldur fagmenn með fé á milli handanna. Tengsl eru á milli sumra þeirra sem staðið hafa fyrir aðskildum ræktunum, að sögn Karls Steinars Valssonar, yfirmanns fíkniefnadeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. „Og við erum auðvitað að skoða hvaða hópar þar búa að baki. Það er hluti af rannsóknum okkar á þessum málum." Þórarinn Tyrfingsson, yfirlæknir á Vogi, segir að erfitt sé að leggja mat á það hversu mikil almenn neysla kannabisefna sé úti í þjóðfélaginu. Þó bendi ýmsar kannanir til þess að á bilinu fjórðungur til þriðjungur íslensku þjóðarinnar neyti kannabisefna árlega eða oftar. Þórarinn segir neyslumynstur að breytast að því leyti að þeir séu í fyrsta sinn að fá inn til meðferðar fólk allt upp í 35 ára sem þjáist eingöngu af kannabisfíkn. Áður hafi kannabisfíklar yfirleitt verið kornungir, en eldra fólk þá búið að leiðast út í harðari efni. Þá segir Þórarinn það mjög varlega áætlað að heildarneysla Íslendinga á kannabis á ári sé rúmt tonn, eins og fram kom í nýlegri skýrslu SÁÁ. „Þetta er algjört lágmark," segir hann.
Mest lesið Banaslys á Hvolsvelli Innlent Vinum hans ekki litist á blikuna Innlent Sumarbústaðaeigendur geti skotið upp flugeldum annars staðar Innlent Veki furðu að bílaleigubílar séu ekki á nagladekkjum Innlent Karólína Helga býður sig fram gegn sitjandi oddvita Innlent Tekur stóra skammta af magnýl og leiðist að hreyfa sig Erlent Fyrsta fórnarlambið nafngreint Erlent Segjast hafa sviðsett aftöku og hirt verðlaunaféð af Rússum Erlent Kveður klettinn í lífi sínu eftir skyndileg veikindi Innlent Barist á götum úti í Íran fimmta daginn í röð Erlent Fleiri fréttir Sex tíma leikskóladvöl nú gjaldfrjáls í Hafnarfirði Neytendur eigi meira inni eftir eldsneytislækkanir á nýju ári Hafna beiðni manns sem braut kynferðislega á stjúpdóttur Banaslys á Hvolsvelli Sumarbústaðaeigendur geti skotið upp flugeldum annars staðar Karólína Helga býður sig fram gegn sitjandi oddvita Mikill meirihluti vill lögfesta rétt barna til leikskólavistar Veki furðu að bílaleigubílar séu ekki á nagladekkjum Eldur í bíl við Breiðhellu Vinum hans ekki litist á blikuna Pétur verið lengur en hún í stjórnmálum Fluttur á sjúkrahús eftir slys í Hrútafirði Pétur fer á móti borgarstjóra og vill fyrsta sætið í Reykjavík Kveður klettinn í lífi sínu eftir skyndileg veikindi Hitnar undir feldi Péturs Þessi fjórtán hlutu fálkaorðuna á nýársdegi „Líðan barna nú mun móta sögu og styrk Íslands á næstu árum“ Fleirum þykir Flokki fólksins ganga illa að hrinda málum í framkvæmd Fimmtán leituðu á bráðamóttöku vegna flugeldaslysa Fjögurra stiga skjálfti í Bárðarbungu: „Stærsti skjálftinn á árinu“ Hvetur Íslendinga til að hafna „svartagallsrausi“ Ríflega tuttugu útköll vegna eldsvoða Vill annað sætið hjá Samfylkingunni í borginni Kveðst hlakka til að mæta aftur til starfa Á bak við tjöldin: „Með alls konar exit plans, trúið mér“ Fyrsta barn ársins kom í heiminn klukkan 00:24 Miðahafi á Íslandi vann 642 milljónir í Víkingalottói Stunguárás og margar tilkynningar um flugeldaslys Gleðilegt nýtt ár kæru lesendur Vísis Eitthvað í íslensku samfélagi fjandsamlegt börnunum okkar Sjá meira