Innlent

Stjórnarskrárfrumvarpi dreift í gær

Frumvarpi um breytingar á stjórnarskrá var dreift á Alþingi í gærkvöldi þar sem meðal annars er lagt til að auðlindir, sem ekki eru háðar einkaeignarrétti, séu þjóðareign. Skiptar skoðanir eru um hvort þetta snerti kvótaeign sjávarútvegsfyrirtækja, en í lögum um stjórnun fiskveiða segir að auðlindir hafsins séu sameiginleg eign þjóðarinnar. Síðan kemur til nýtingarréttur, eða kvóti, sem gengið hefur kaupum og sölum , en lánastofnanir telja slíkan rétt veðhæfan eins og hverja aðra eign.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×