Katrín um launamál Rúv: Vel í lagt hjá efstu mönnum Breki Logason skrifar 30. apríl 2009 14:14 Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra.
Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra segir að vinna sé þegar hafin við endurskoðun á þjónustusamningi við Rúv og meðal annars sé verið að skoða launauppbygginguna innan félagsins. Í árshlutauppgjöri Rúv frá 1.september til loka febrúar á þessu ári kemur fram að tap félagsins sé rúmar 365 milljónir króna. Páll Magnússon útvarpsstjóri fær rúma 1,5 milljón króna á mánuði. Katrin segir vel í lagt hjá efstu mönnum. „Það er vinna í gangi núna eftir að við skrifuðum undir samning um að auka eigið fé Rúv þann 22.apríl. Við það varð eiginfjárstaðan jákvæð aftur en partur af því er að endurskoða þjónustusamninginn við Rúv, endurskoða samþykktirnar og launauppbygginguna innan félagsins," segir Katrín. „Það eru náttúrulega allir búnir að taka á sig launalækkun en það er vel í lagt þarna hjá efstu mönnum. Það er eitthvað sem við munum vinna í og ná samkomulagi við Rúv um." Aðspurð um tap Rúv sem er um 60 milljónir á mánuði segir Katrín fjármagnskostnaðinn vera stærsta liðinn þar. „Það eru einkum gjöldin sem eru að valda þeim vandræðum og það er áhyggjuefni. Það er einmitt hluti af því að við tókum þetta yfir í lok apríl til þess að rétta við eiginfjárstöðuna. Síðan þurfum við að skoða hvernig þetta Ohf-form virkar og hvað við getum lært af reynslunni á því."
Tengdar fréttir RUV tapar 60 milljónum á mánuði Tap RUV ohf. nam rúmlega 365 milljónum kr. á tímabilinu frá 1. september í fyrra og fram til loka febrúar í ár samkvæmt árshlutareikningi félagsins. Þetta samsvarar því að RUV hafi tapað rúmum 60 milljónum kr. á hverjum mánuði tímabilsins. 30. apríl 2009 09:46 Rekstur RÚV á áætlun Ríkisútvarpið tapaði 365 milljónum króna á sex mánaða tímabili frá byrjun september til loka febrúarmánaðar síðastliðins. Þetta kemur fram í árshlutareikningi sem birtur var í dag. Aukinn fjármagnskostnaður skýrir tapið segir útvarpsstjóri. Hann segir rekstur RÚV vera á áætlun. 30. apríl 2009 12:20 Mest lesið Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Innlent Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Innlent „Hefði viljað meira afgerandi stuðning við Nei-ið í fyrstu tölum“ Innlent „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ Innlent Allt hnífjafnt í Kraganum samkvæmt fyrstu tölum Innlent Sextíu prósent segja já í Reykjavík norður Innlent „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ Innlent 56 prósent segja nei í Norðausturkjördæmi Innlent Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Innlent „Alveg skýrt að unga fólkið segir nei“ Innlent Fleiri fréttir „Alveg skýrt að unga fólkið segir nei“ „Hefði viljað meira afgerandi stuðning við Nei-ið í fyrstu tölum“ Allt hnífjafnt í Kraganum samkvæmt fyrstu tölum Sextíu prósent segja já í Reykjavík norður 56 prósent segja nei í Norðausturkjördæmi Meirihluti segir já í Reykjavík suður „Ég er mjög kátur“ Nei-liðar umtalsvert fleiri samkvæmt fyrstu tölum í Norðvesturkjördæmi Sextíu prósent segja nei samkvæmt fyrstu tölum í Suðurkjördæmi Hvenær birtast tölurnar í kvöld og nótt? Bjargað úr sjálfheldu í Reynisfjöru Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Hvað segja veðbankarnir? Valkyrjurnar halda blaðamannafund Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Geri lítið úr fyrirmyndarstarfi Átröskun vangreind hjá strákum og sífellt yngri börn þurfa aðstoð Vísbendingar um aukna kjörsókn Kjörsókn meiri en á sama tíma í síðustu þingkosningum „Þetta gæti ekki verið meira spennandi“ Allt bendi til lítils jökulshlaups Bjart og þurrt þegar þjóðin gengur að kjörborðinu Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Hnífjafnt í síðustu könnuninni Umræðan hafi verið ruglingsleg og á lágu plani Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Sjá meira
RUV tapar 60 milljónum á mánuði Tap RUV ohf. nam rúmlega 365 milljónum kr. á tímabilinu frá 1. september í fyrra og fram til loka febrúar í ár samkvæmt árshlutareikningi félagsins. Þetta samsvarar því að RUV hafi tapað rúmum 60 milljónum kr. á hverjum mánuði tímabilsins. 30. apríl 2009 09:46
Rekstur RÚV á áætlun Ríkisútvarpið tapaði 365 milljónum króna á sex mánaða tímabili frá byrjun september til loka febrúarmánaðar síðastliðins. Þetta kemur fram í árshlutareikningi sem birtur var í dag. Aukinn fjármagnskostnaður skýrir tapið segir útvarpsstjóri. Hann segir rekstur RÚV vera á áætlun. 30. apríl 2009 12:20