Trukkabílstjórar gera sér glaðan dag 12. september 2009 05:00 Hressir trukkarar Dóri tjakkur, lengst til vinstri, heldur árlegt skemmtikvöld sitt á Spot í Kópavogi í kvöld. Jói Bach er annar frá hægri.Fréttablaðið/Valli „
Við stefnum að því að ná sömu tölu og síðast, þúsund manns,“ segir Jóhannes Bachmann, einn skipuleggjenda Trukkakvölds Dóra tjakks sem haldið verður á Spot í Kópavogi í kvöld. Stíf dagskrá verður á malarplaninu fyrir aftan Smáralind í dag. Þar verður sýningin Trukkar & tæki 2009 þar sem trukkabílstjórar landsins koma saman og sýna tryllitæki sín. Almenningi gefst kostur á að skoða tækin. Ef veður leyfir verður hægt að láta hífa sig tugi metra upp í loft í körfu. Ókeypis er inn á sýninguna og segir Jóhannes að þar verði eitthvað að finna fyrir alla aldurshópa. Jóhannes stendur að skipulagningu sýningarinnar og skemmtikvöldsins ásamt þeim Dóra tjakk, Ólafi Þór, Gesti Reynissyni og Herði Aðils. Hann segir að margir úr þessum geira séu fluttir úr landi en enn sé nóg af fólki sem vilji gera sér glaðan dag. „Þetta er eina dæmið í þessum geira þar sem eitthvað er um að vera, fyrir utan árshátíð. Trukkakvöld Dóra tjakks er algjört eðalkvöld sem enginn vill missa af.“ Dagskráin er ekki flókin þegar trukkabílstjórar koma saman. Á þeirra samkomum kneyfa menn öl, ræða málin og stíga svo dans þegar hljómsveitin stígur á svið. „Við erum svo skemmtileg og hress. Við látum okkur sömu hljómsveit og í fyrra duga. Strákarnir í Sixties voru æðislegir í fyrra og nú eru þeir reynslunni ríkari.“- hdm
Mest lesið Leikkonan Hayden Panettiere er látin Lífið Barnalán hjá Brynju Dan Lífið Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Lífið Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Lífið Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Lífið Bestu hlutverk Hayden Panettiere Bíó og sjónvarp Auðunn tilkynnir nýja kærustu Lífið Þórdís Elva er gengin út Lífið Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Lífið Svana á tímamótum og selur slotið Lífið Fleiri fréttir Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Útför Gunnars Þórðarsonar Dreymir um að halda næstu Kaleo-tónleika á Vestfjörðum Emmsjé edrú í sjö ár Fór á skeljarnar undir almyrkvanum Sjá meira