Innlent

Fordæma ákvörðun Einars um hvalveiðar

Erna Hauksdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar.
Erna Hauksdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar.
Samtök ferðaþjónustunnar fordæma ákvörðun Einars K. Guðfinssonar, starfandi sjávarútvegsráðherra, að heimila hvalveiðar og telja með ólíkindum að slík ákvörðun skuli tekin af ráðherra sem er að hætta störfum.

„Ljóst er að ekki hefur verið haft samráð við þá stjórn sem nú situr og enn síður við þá sem eru að mynda nýja stjórn en þar er mikil andstaða við hvalveiðar. Varla getur leikið vafi á því að næsta ríkisstjórn afturkalli leyfið," segir í tilkynningu samtakanna.

Umfjöllun um Ísland erlendis hefur verið mjög neikvæð allt frá því er bankarnir hrundu og hafa ýktar lýsingar á óeirðum hér á landi nýlega bæst við í heimspressunni án þess að Íslendingar fái rönd við reist, segir í tilkynningu. „Það verður mikil vinna að endurreisa ímynd Íslands. Stórfelldar hvalveiðar munu bæta í vandann."

„Hvalveiðar, ekki síst stórhvalaveiði, skapa mikla gagnrýni í okkar helstu viðskiptalöndum og á undanförnum árum hafa ítrekað komið fram dæmi um að neytendur sniðgangi íslenskar vörur og þjónustu vegna þeirra hvalveiða sem stundaðar hafa verið á undanförnum árum."

Samtökin segja að hrefnuveiði undanfarinna ára hafi nú þegar skaðað hvalaskoðunina mikið og sífellt færri hrefnur sjáist á þeim svæðum sem hvalaskoðunarbátar nýta. „Hvalaskoðun hefur verið sú grein innan ferðaþjónustunnar sem hefur vaxið hvað hraðast á undanförnum árum með tilheyrandi fjölda starfa og virðisauka fyrir íslenska þjóðarbú, það er því alveg ljóst að með þessari ákvörðun er verið að skaða þessa uppbyggingu og kasta frá sér meiri hagsmunum fyrir minni."

Samtök ferðaþjónustunnar hvetja næstu ríkisstjórn til þess að afturkalla þessa heimild.




Tengdar fréttir

Talaði ekki við ferðamálaráðherrann um hvalveiðar

Þeir Steingrímur J. Sigfússon og Össur Skarphéðinsson gagnrýna báðir ákvörðun Einars K. Guðfinnssonar sjávarútvegsráðherra að leyfa veiðar á Langreyðum næstu fimm árin sem tekin var í gær. Steingrímur segir að um sé að ræða ákaflega sérkennilega stjórnsýslu hjá ráðherra sem sitji í starfsstjórn. „Þetta er ekki stórmannlegt,“ sagði Steingrímur.

Jón Ásgeir: Hvalveiðar skaða eignir erlendis

Jón Ásgeir Jóhannesson, stjórnarformaður Baugs og Iceland-verslunarkeðjunnar, hefur áhyggjur af því að leyfi Einars K. Guðfinnssonar sjávarútvegsráðherra á hvalveiðum til 2013 muni koma til með að skaða eignir Íslendinga erlendis.

Norrænir stjórnmálamenn gagnrýna áformaðar hvalveiðar harðlega

Ákvörðun Íslendinga um að auka hvalveiðikvótann var gagnrýnd harðlega á fundi Norðurlandaráðs sem haldin er á Íslandi þessa dagana. Meðal annars er það tímasetning ákvörðunar um aukinn kvóta sem vekur athygli, ekki síst vegna fjármálakreppunnar. Þá er það gagnrýnt að ríkisstjórnin hafi




Fleiri fréttir

Sjá meira


×