Innlent

Troðningur í höfninni á Arnarstapa

Mesti troðningur fiskibáta á Íslandi er sennilega á Arnarstapa á Snæfellsnesi. Þótt þar sé ein minnsta höfn landsins er þorskaflinn sem þangað hefur borist litlu minni en landað hefur verið á Akureyri frá áramótum.

Umgjörðin er þekkt af póstkortum en fjöldi bátanna er í engu samræmi við íbúafjöldann. Heimilin á Arnarstapa eru aðeins fjögur en bátarnir upp undir fjörutíu. Smári Björgvinsson, starfsmaður Fiskmarkaðar Íslands, var við löndun og hann segir þetta annasömustu litlu höfn á Íslandi.

Þarna er bara ein lítil bryggja og menn verða að vara sig á að vera ekki fyrir í öllum hamaganginum þegar bátarnir streyma inn. Í þessari litlu höfn er landað meiri afla en í mörgum af stærri höfnum landsins. Þorskaflinn á Arnarstapa frá áramótum er meiri en á Ísafirði og litlu minni en landað hefur verið á Akureyri enda stutt á fengsæl fiskimið. Bátarnir hafa fiskað vel að undanförnu og margir með tvö og upp í fjögur tonn í róðri af vænum fiski.

Þetta var enn fjörugra fyrir áratug þegar þarna voru sextíu til áttatíu bátar og lágu þá upp í fimmtán í röð hver utan á öðrum. Sjómennirnir eiga margir þarna sumarbústað en flestir koma frá öðrum Faxaflóahöfnum og Snæfellsnesi. Óvíða er eins auðvelt að nálgast bjargfugl á hreiðrum og Smári Björgvinsson er á því að þetta sé fegursta höfn landsins.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×