Háloftaslys: Einstakt tilfelli 25. maí 2009 11:19 Frá aðstöðu Svifvængjamanna. Mynd/svifflug.is „
Menn komast alveg upp í þriggja kílómetra hæð á svifvængnum," segir formaður Fisfélags Reykjavíkur, Ágúst Guðmundsson, en liðsmaður félagsins varð næstum fyrir farþegaþotu þar síðustu helgi. Það var fréttastofa Stöðvar 2 sem sagði frá málinu í gær. Þar kom fram að maður hefði verið á svifvæng yfir Sandskeiði þegar farþegaþota frá Icelandair flaug framhjá honum. Flugmenn þotunnar virðast hafa tekið eftir flugmanni svifvængsins því þeir tilkynntu atvikið til Flugmálastofnunnar og Rannsóknarnefnd flugslysa. Talið er að um kílómeter hafi verið á milli þotunnar og mannsins. Aðspurður segist formaður Fisfélagsins ekki hafa heyrt af sambærilegu máli. „Það er óhætt að segja að þetta er einstakt tilfelli," segir Ágúst en félagsmenn Fisfélagsins telja 160 meðlimi. Hópurinn skiptist í tvennt, þeir sem fljúga á mótorknúnum fisvængjum og svo hinir sem eru mótorlausir. Maðurinn sem flaug svo nálægt farþegaþotunni var ekki á mótorknúnu faratæki. Aðspurður segir Ágúst að faratækin komist yfir þriggja kílómetra hæð. Veðurskilyrði séu almennt góð fyrir sportið hér á landi en stundum eiga ofurhugarnir í vandræðum með vind. „Slysatíðni er mjög lág," segir Ágúst um sportið sjálft og þakkar hann góðri kennslu og undirbúningi þeirra sem læra á svifvængina. Sjálfur vildi hann ekki tjá sig um slysahættuna sem myndaðist þegar farþegaþotan flaug svo nærri manninum. Að sögn Ágústs var það sameiginleg ákvörðun hjá flugmanni svifvængsins og félaginu að tjá sig ekki um einstaka þætti málsins fyrr en skoðun rannsóknarnefndar lægi fyrir. Þá má geta þess að eiginleg rannsókn er ekki hafin á málinu en það er til skoðunar hjá rannsóknarnefnd flugslysa. Ekki liggur fyrir hvort málið verði rannsakað frekar en rannsóknarnefndin er að safna upplýsingum um málið.
Tengdar fréttir Flaug næstum því á fallhlífarstökkvara Litlu munaði að farþegaþota Icelandair, sem var að koma inn til lendingar á Keflavíkurflugvelli síðustu helgi, rækist á fallhlífarstökkvara. 24. maí 2009 18:45 Mest lesið „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Innlent Slasaðist alvarlega við heyskap Innlent Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Innlent Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Innlent Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Innlent Mótorhjól og bíll skullu saman Innlent Einbreiðar brýr við Berufjörð og Reyðarfjörð líklega næstar Innlent Nálægt því að útrýma moskítóflugu á Suðurlandi Innlent Fleiri fréttir Lögreglan bauð fimmtugum Íslendingi „gistingu með öllu inniföldu“ í fangaklefa Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sólmyrkvinn ógnar fjarskiptum og Mærudagar ganga í garð Úttekt landlæknis á Hraunbúðum: Fagmenntað starfsfólk langt undir lágmarksviðmiðum „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Ekið á dreng á hjóli og aðrir fluttir á slysadeild eftir hjólaslys Á sjúkrahús eftir að hafa flogið af mótorhjólinu Eldur kviknaði á Fiskislóð Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Kominn til Akureyrar eftir alvarlegt slys á skemmtiferðaskipi „Það er verið að dreifa athyglinni, það er verið að auka óvissu“ „Gott og vel við skulum trúa ráðherranum“ Utanríkisráðherra svarar og kona stórslasaðist á hlaupahjóli Ekki um „týndar skýrslur“ að ræða Hart tekist á um ESB Burðardýr Stúarts litla dæmd í sex ára fangelsi Tekinn úr umferð vegna ótrúlegrar brotahrinu Góðu fréttirnar þær að innlend verðbólga sé á undanhaldi Druslur ganga í fjórtánda sinn: „Aldrei verið meiri þörf á því heldur en núna“ Tveir af þremur í fangelsi vegna eldri dóma Air China hefur sölu á flugmiðum frá Íslandi til Kína Verðbólgan eykst enn og borgarstjóri boðar aðgerðir gegn innbrotum Kynna nýtt varanúmer fyrir Neyðarlínuna Vara við hviðum sunnan við Vatnajökul Pallborðið: Nei eða já? Hvalavinir lýsa eftir týndum skýrslum Leggur til breytingar á útivistartíma barna Mikil óhreinindi í ólöglegum peptíðum Sjá meira
Flaug næstum því á fallhlífarstökkvara Litlu munaði að farþegaþota Icelandair, sem var að koma inn til lendingar á Keflavíkurflugvelli síðustu helgi, rækist á fallhlífarstökkvara. 24. maí 2009 18:45