Innlent

Háloftaslys: Einstakt tilfelli

Frá aðstöðu Svifvængjamanna. Mynd/svifflug.is
Frá aðstöðu Svifvængjamanna. Mynd/svifflug.is

„Menn komast alveg upp í þriggja kílómetra hæð á svifvængnum," segir formaður Fisfélags Reykjavíkur, Ágúst Guðmundsson, en liðsmaður félagsins varð næstum fyrir farþegaþotu þar síðustu helgi.

Það var fréttastofa Stöðvar 2 sem sagði frá málinu í gær. Þar kom fram að maður hefði verið á svifvæng yfir Sandskeiði þegar farþegaþota frá Icelandair flaug framhjá honum. Flugmenn þotunnar virðast hafa tekið eftir flugmanni svifvængsins því þeir tilkynntu atvikið til Flugmálastofnunnar og Rannsóknarnefnd flugslysa.

Talið er að um kílómeter hafi verið á milli þotunnar og mannsins.

Aðspurður segist formaður Fisfélagsins ekki hafa heyrt af sambærilegu máli. „Það er óhætt að segja að þetta er einstakt tilfelli," segir Ágúst en félagsmenn Fisfélagsins telja 160 meðlimi.

Hópurinn skiptist í tvennt, þeir sem fljúga á mótorknúnum fisvængjum og svo hinir sem eru mótorlausir. Maðurinn sem flaug svo nálægt farþegaþotunni var ekki á mótorknúnu faratæki.

Aðspurður segir Ágúst að faratækin komist yfir þriggja kílómetra hæð. Veðurskilyrði séu almennt góð fyrir sportið hér á landi en stundum eiga ofurhugarnir í vandræðum með vind.

„Slysatíðni er mjög lág," segir Ágúst um sportið sjálft og þakkar hann góðri kennslu og undirbúningi þeirra sem læra á svifvængina. Sjálfur vildi hann ekki tjá sig um slysahættuna sem myndaðist þegar farþegaþotan flaug svo nærri manninum. Að sögn Ágústs var það sameiginleg ákvörðun hjá flugmanni svifvængsins og félaginu að tjá sig ekki um einstaka þætti málsins fyrr en skoðun rannsóknarnefndar lægi fyrir.

Þá má geta þess að eiginleg rannsókn er ekki hafin á málinu en það er til skoðunar hjá rannsóknarnefnd flugslysa. Ekki liggur fyrir hvort málið verði rannsakað frekar en rannsóknarnefndin er að safna upplýsingum um málið.




Tengdar fréttir

Flaug næstum því á fallhlífarstökkvara

Litlu munaði að farþegaþota Icelandair, sem var að koma inn til lendingar á Keflavíkurflugvelli síðustu helgi, rækist á fallhlífarstökkvara.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×