Innlent

Undrast fjarveru sjálfstæðismanna

Þór Saari, þingmaður Borgarahreyfingarinnar.
Þór Saari, þingmaður Borgarahreyfingarinnar.
Þór Saari, þingmaður Borgarahreyfingarinnar, undrast að enginn sjálfstæðismaður hafi á tímabili í dag verið viðstaddur umræður í framhaldi á munnlegri skýrslu Jóhönnu Sigurðardóttir, forsætisráðherra, um efnahagsmál, en skýrslan var flutt að beiðni þingflokks sjálfstæðismanna.

„Athyglisvert var að það var Sjálfstæðisflokkurinn sem bað um skýrsluna en fljótlega hurfu þeir úr salnum og um tíma var enginn sjálfstæðismaður í salnum til að hlusta á umræður um skýrslu sem þeir höfðu sjálfir beðið um," segir Þór í pistli á heimasíðu sinni þar sem hann fjallar um þingstörfin og fyrstu daga sína sem þingmaður.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×