Borgarahreyfing: Framkvæmdarstjóri vill ekki ofurlaun 25. maí 2009 17:02 Jóhann Kristjánsson, framkvæmdarstjóri þingflokks Borgarahreyfingarinnar.
Framkvæmdarstjóri Borgarahreyfingarinnar, Jóhann Kristjánsson, segist ekki hafa gert launakröfu upp á 7.7 milljónir. Hann hafi eingöngu notað það sem viðmið hefði hreyfingin viljað umbuna honum fyrir að gegna starfi kosningastjóra fyrir síðustu þingkosningar. Mikill átakafundur var hjá Borgarahreyfingunni í gærkvöldi en þar lagði Jóhann fram ætlaðan kostnað fyrir hreyfinguna væri þjónusta hans aðkeypt en ekki sjálfboðavinna eins og raunin var. „Ég sýndi fram á framlag mitt með því," segir Jóhann og þvertekur fyrir að hafa sett fram einhverjar launakröfur hvað það varðaði. Hann segist þó hafa stungið upp á því, hefði hreyfingin áhuga á því að umbuna honum fyrir störf sín, að fimm prósent af 7.7 milljónunum væri þá nærri lagi. En það eru tæpar 400 þúsund krónur. Stjórnin neitaði í gær að samþykkja þau laun. „Ég veit ekki afhverju þetta mál kemur svona upp," segir Jóhann sem nú starfar sem framkvæmdarstjóri þingflokks Borgarahreyfingarinnar. Um átakafundinn segir Jóhann að hann hafi einkennst af misskilningi og jafnvel vitlausum upplýsingum. Þar hafi til að mynda verið haldið fram að Borgarahreyfingin hygðist leigja hornskrifstofu á besta stað í bænum. Það sé þó ekki rétt. „Þessi átök voru ekki lýsandi fyrir hreyfinguna," segir Jóhann að lokum.
Tengdar fréttir Borgarahreyfing: Átök hluti af gagnsæi Stjórn Borgarahreyfingarinnar hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna átakafundar sem var haldin í gærkvöldi en þar var framkvæmdarstjóri hreyfingarinnar harðlega gagnrýndur. Hann lagði fram reikning á félagsfundinum þar sem hann óskaði eftir að fá 7.7 milljónir króna fyrir störf sín. 25. maí 2009 15:56 Borgarahreyfing: Framkvæmdarstjóri vill 7.7 milljónir Framkvæmdarstjóri Borgarahreyfingarinnar vill 7.7 milljónir fyrir störf sín en launakröfuna lagði hann fram á félagafundi hreyfingarinnar í gærkvöldi. Það er Jóhann Kristjánsson sem gegnir starfi framkvæmdarstjóra. 25. maí 2009 14:29 Mest lesið „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Innlent Slasaðist alvarlega við heyskap Innlent Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Innlent Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Mótorhjól og bíll skullu saman Innlent Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Innlent Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Innlent Einbreiðar brýr við Berufjörð og Reyðarfjörð líklega næstar Innlent Nálægt því að útrýma moskítóflugu á Suðurlandi Innlent Fleiri fréttir Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Lögreglan bauð fimmtugum Íslendingi „gistingu með öllu inniföldu“ í fangaklefa Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sólmyrkvinn ógnar fjarskiptum og Mærudagar ganga í garð Úttekt landlæknis á Hraunbúðum: Fagmenntað starfsfólk langt undir lágmarksviðmiðum „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Ekið á dreng á hjóli og aðrir fluttir á slysadeild eftir hjólaslys Á sjúkrahús eftir að hafa flogið af mótorhjólinu Eldur kviknaði á Fiskislóð Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Kominn til Akureyrar eftir alvarlegt slys á skemmtiferðaskipi „Það er verið að dreifa athyglinni, það er verið að auka óvissu“ „Gott og vel við skulum trúa ráðherranum“ Utanríkisráðherra svarar og kona stórslasaðist á hlaupahjóli Ekki um „týndar skýrslur“ að ræða Hart tekist á um ESB Burðardýr Stúarts litla dæmd í sex ára fangelsi Tekinn úr umferð vegna ótrúlegrar brotahrinu Góðu fréttirnar þær að innlend verðbólga sé á undanhaldi Druslur ganga í fjórtánda sinn: „Aldrei verið meiri þörf á því heldur en núna“ Tveir af þremur í fangelsi vegna eldri dóma Air China hefur sölu á flugmiðum frá Íslandi til Kína Verðbólgan eykst enn og borgarstjóri boðar aðgerðir gegn innbrotum Kynna nýtt varanúmer fyrir Neyðarlínuna Vara við hviðum sunnan við Vatnajökul Pallborðið: Nei eða já? Hvalavinir lýsa eftir týndum skýrslum Leggur til breytingar á útivistartíma barna Sjá meira
Borgarahreyfing: Átök hluti af gagnsæi Stjórn Borgarahreyfingarinnar hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna átakafundar sem var haldin í gærkvöldi en þar var framkvæmdarstjóri hreyfingarinnar harðlega gagnrýndur. Hann lagði fram reikning á félagsfundinum þar sem hann óskaði eftir að fá 7.7 milljónir króna fyrir störf sín. 25. maí 2009 15:56
Borgarahreyfing: Framkvæmdarstjóri vill 7.7 milljónir Framkvæmdarstjóri Borgarahreyfingarinnar vill 7.7 milljónir fyrir störf sín en launakröfuna lagði hann fram á félagafundi hreyfingarinnar í gærkvöldi. Það er Jóhann Kristjánsson sem gegnir starfi framkvæmdarstjóra. 25. maí 2009 14:29