Innlent

Áfrýjunarnefnd staðfestir brot Bændasamtakanna

Haraldur Benediktsson, formaður Bændasamtaka Íslands.
Haraldur Benediktsson, formaður Bændasamtaka Íslands.
Áfrýjunarnefnd samkeppnismála hefur staðfest niðurstöðu Samkeppniseftirlitsins frá 6. mars síðastliðnum að Bændasamtök Íslands hafi brotið gegn samkeppnislögum með aðgerðum sem miðuðu að því að hækka verð á búvörum. Áfrýjunarnefndin taldi þó við hæfi að lækka sekt sem lögð var á samtökin, í sjö og hálfa milljón króna, en Samkeppniseftirlitið hafði áður sektað samtökin um tíu milljónir.

Í tilkynningu frá Samkeppniseftirlitinu kemur fram að brotið hafi átt sér stað í tengslum við Búnaðarþing sem haldið var í mars 2008. „Var brotið talið snúa að búvörum sem ekki lúta opinberri verðlagningu skv. búvörulögum, s.s. kjúklingum, eggjum, grænmeti og svínakjöti. Vegna þessa brots var BÍ gert að greiða 10.000.000 kr. stjórnvaldssekt og lagt fyrir BÍ að grípa til aðgerða til þess að koma í veg fyrir að samskonar brot verði endurtekin."

Bændasamtökin skutu málinu til áfrýjunarnefndar samkeppnismála því samtökin töldu sig ekki hafa brotið samkeppnislög og héldu því fram að aðgerðir þeirra falli ekki undir ákvæði samkeppnislaga. „Hafa BÍ í því sambandi vísað til ákvæða búvörulaga. Samkeppniseftirlitið hefur hins vegar byggt á því að samkeppni sé ætlað að tryggja hagsmuni almennings varðandi þær búvörur sem ekki lúta opinberri verðlagningu. Í málinu reyndi því á mikilvæg álitaefni varðandi samspil búvörulaga og samkeppnislaga," segir einnig.

Áfrýjunarnefndin segir að verðlagning búvara sem ekki eru verðlagðar á grundvelli búvörulaga lúti „lögmálum hins frjálsa markaðar og þar með ákvæðum samkeppnislaga eins og samkeppnisyfirvöld hafa staðfest hvað eftir annað með úrskurðum þar að lútandi." Staðfesti nefndin einnig að BÍ hafi brotið gegn samkeppnislögum með aðgerðum sem miðuðu að því að hækka verð á búvörum og taldi nefndin að um óvéfengjanlegt lögbrot hafi verið að ræða.

„Áfrýjunarnefnd samkeppnismála taldi hæfilegt að lækka sekt BÍ í sjö og hálfa milljón kr. Var í því sambandi vísað til þess að um fyrsta brot BÍ væri að ræða og að opinskáar umræður hefði lengi viðgengist á vettvangi BÍ án afskipta. Áfrýjunarnefnd taldi fyrirmæli Samkeppniseftirlitsins til BÍ um aðgerðir til að koma í veg fyrir að samskonar brot verði endurtekin of almenn og felldi þau úr gildi. Mun Samkeppniseftirlitið í kjölfar þessa úrskurðar setja sig í samband við BÍ til að tryggja að settar verði skýrar vinnureglur sem tryggi að á vettvangi BÍ eigi sér ekki aftur stað ólögmætt verðsamráð."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×