Eyfi ekki raðmorðinginn í Suður-Karólínu 8. júlí 2009 06:00 raðmorðinginn og eyfi Eyfi segist hættur að ganga með derhúfu auk þess sem hann var úti í Eyjum alla helgina en ekki í Suður-Karólínu en þangað hefur hann aldrei komið. „
Ég hef verið víða í Bandaríkjunum en ekki komið til Karólínu. Ég þekki konu sem heitir Karólína en hún býr í Hafnarfirði," segir Eyjólfur Kristjánsson tónlistarmaður - Eyfi. Nýjustu fréttir af raðmorðingja sem leikið hefur lausum hala í Suður-Karólínu eru að þar fór líklega Patrick Tracy Burris sem lögreglan skaut til bana á mánudag - en ekki Eyfi eins og ábendingar sem Fréttablaðinu bárust gætu gefið til kynna: „Veit einhver hvar Eyfi er?" Teikningar sem lögreglan lét gera af raðmorðingjanum þykja sláandi líkar Eyfa. „Ég er reyndar hættur að ganga með derhúfu, er stoltur af höfuðlaginu eftir að hárið fór að hverfa. Já, þeir hafa náð honum. Hvar sé ég þessa teikningu? Já, vá! Þetta er ekki ólíkt mér," segir Eyfi forviða í samtali við blaðamann. Aðspurður hvort þetta geti verið tvíburabróðir hans telur hann það ólíklegt. Eyfi segir þá sögu að þegar hann var að spila með Hálft í hvoru í Barbican Center í London árið 1984 lenti hann í þeirri sérkennilegu lífreynslu að þau í bandinu voru að labba úti á götu og þá stígur maður út úr flottum bíl. „Og ég get svarið að þetta var eins og að líta í spegil. Við vorum nákvæmlega eins. Honum brá einnig og það varð almennur hlátur uppúr þessu. Í kjölfarið læddust að manni ýmsar grunsemdir," segir Eyfi léttur. En fjarvistarsönnun hans er í góðu lagi. Hann var úti í Eyjum alla helgina að spila tónlist á Goslokahátíð auk þess sem hann skaust upp á Skaga til að spila brekkusöng á Írskum dögum þar. „Þannig að ég hafði engan tíma til að sinna raðmorðum í Suður-Karólínu - það er ef ég hefði þær kenndir í mér."
Mest lesið Nicole er fyrir norðan Lífið Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Lífið Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Lífið Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Lífið Barnalán hjá Brynju Dan Lífið Bestu hlutverk Hayden Panettiere Bíó og sjónvarp Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Lífið Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Lífið Leikkonan Hayden Panettiere er látin Lífið Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Lífið Fleiri fréttir Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Nicole er fyrir norðan Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Sjá meira