Skjálftinn mældist 4,7 á richter - stöðugir eftirskjálftar 29. maí 2009 21:54 Mynd/www.vedur.is
Jarðskjálftinn, sem átti upptök sín um 8 kílómetra norðaustur af Grindavík, var af stærðinni 4,7 á richter, segir Gunnar Guðmundsson jarðskjálftafræðingur hjá Veðurstofu Íslands. Hann segir að skjálftinn hafi fundist víða, meðal annars í Borgarfirði. Skjálftinn varð klukkan 21:33. Fyrstu tölur bentu til þess að skjálftinn væri 3,9 og síðar 4,5 á richter. Gunnar telur að skjálftinn hafi verið á 6-7 kílómetra dýpi. Frá því að stóri skjálftinn reið yfir hafa verið stöðugir eftirskjálftar og á Gunnar von á því að það verði þannig frameftir nóttu. Þeir hafa allir verið mun minni en sá stóri. Fjölskyldufaðir í Grindavík sagði í samtali við fréttastofu að skjálftarnir hefðu verið afar snarpir og hann hefði þurft að hafa sig allan við svo sjónvarp myndi ekki enda á stofugólfinu. Hann sagði fjölskyldunni verulega brugðið og að í fyrstu virðist ekki hafa orðið skemmdir á á heimilinu.
Tengdar fréttir Á annað hundrað eftirskjálftar Gunnar B. Guðmundsson, jarðskjálftafræðingur hjá Veðurstofu Íslands, segir að á annað hundrað eftirskjálftar hafi fylgt jarðskjálftanum sem varð klukkan rúmlega hálftíu í kvöld norðaustur af Grindavík. Þeir stærstu hafa verið um 3 stig á richter en stóri skjálftinn var 4,7 stig. 29. maí 2009 23:44 Líklega um eðlilegar jarðskorpuhreyfingar að ræða Allstór jarðskjálfti varð á svæði um 11 kílómetra suðvestur af Hafnarfirði klukkan 21:33 í kvöld. Skjálftinn varð nánast undir Reykjanesbraut nálægt Kúgerði, segir Sigurður Þ. Ragnarsson jarðeðlisfræðingur. Fyrstu tölur bentu til að hann væri 3,9 á Richter en endurreiknaðar tölur Evrópsku jarðskjálftamiðstöðvarinnar benda til þess að hann hafi verið 4,8 á Richter og á um tveggja kílómetra dýpi, segir Sigurður. 29. maí 2009 21:40 Íbúi í Grindavík: Hélt að um Suðurlandsskjálfta væri að ræða Sigmar Eðvarðsson, bæjarfulltrúi í Grindavík, segir jarðskjálftann sem varð klukkan rúmlega hálftíu í kvöld hafa staðið í 4 til 5 sekúndur. Ár er liðið frá Suðurlandsskjálftanum og segir Sigmar að hann hafi í fyrstu talið að um annan slíkan skjálfta hafi verið ræða. Hann hafi ekki áttað sig ekki á því að upptök skjálftans væru í grennd við bæinn. 29. maí 2009 22:55 Lögreglu ekki borist tilkynningar um tjón Lögreglunni á Suðurnesjum hefur ekki borist neinar tilkynningar um tjón vegna jarðskjálftann sem varð klukkan hálf tíu í kvöld norðvestan af Grindavík. 29. maí 2009 22:14 Mest lesið Gjörsamlega út í hött að þurfa að hanga svo lengi í stúdíóinu Innlent Ákærð fyrir manndráp: Á að hafa brugðið snöru um háls dótturinnar Innlent „Ásdís, stattu með samgöngusáttmálanum!“ Innlent Sjálfstæðisflokkur eykur forskotið á Samfylkingu í Reykjavík Innlent Engin ákvörðun fyrr en eftir kosningar en íbúar uggandi Innlent „Við erum bara komin aftur í Icesave-tímann“ Innlent Ákærður fyrir að veiða minka Innlent Spurningunni verði breytt og svarið einfalt „Já“ eða „Nei“ Innlent Fjórar „brúðir ISIS“ snúa aftur til Ástralíu Erlent Mikil tíðindi í nýrri Maskínu-könnun og fjölda afbrotamanna vísað úr landi Innlent Fleiri fréttir Á sjötta tug vísað úr landi Boeing 757-þotur gætu kvatt Icelandair í haust Leggja til að börn verði ekki vistuð í brottfararstöðinni Ekki hafi tekist að sanna að brotið hafi verið á friðhelgi Páls „Þetta eru bestu launin, hlýjan í hjartað“ „Við erum bara komin aftur í Icesave-tímann“ Sjálfstæðisflokkur eykur forskotið á Samfylkingu í Reykjavík Gögn íslenskra nemenda mögulega í höndum netþrjóta Mikil tíðindi í nýrri Maskínu-könnun og fjölda afbrotamanna vísað úr landi Ákærð fyrir manndráp: Á að hafa brugðið snöru um háls dótturinnar Þóra og Ríkisútvarpið sýknuð af kröfum Páls skipstjóra Gera athugasemdir við að borgarbúar kjósi í Kópavogi Gjörsamlega út í hött að þurfa að hanga svo lengi í stúdíóinu „Það má ekki eyða peningum sem Alþingi hefur ekki úthlutað“ „Ásdís, stattu með samgöngusáttmálanum!“ Breytt verklag útskýri hærri tölur í áhættumati Ákærður fyrir að veiða minka Eldur í mannlausri rútu í Laugardal Spurningunni verði breytt og svarið einfalt „Já“ eða „Nei“ Örlítið fleiri fæðingar en frjósemin stendur í stað Ein minniháttar líkamsárás á annars rólegri vakt lögreglu Engin ákvörðun fyrr en eftir kosningar en íbúar uggandi Hættum að vera þjóð ef við höldum ekki upp á íslenskuna Undirstöður Fossvogsbrúar reknar niður í sjávarbotninn Setja skýr skilyrði fyrir meirihlutasamstarfi í Reykjavík „Það yrðu gríðarleg vonbrigði ef svo væri“ Kona á sjötugsaldri lenti á sjúkrahúsi með 125 pakkningar innvortis Vill fjölga börnum sem eru eingöngu á brjósti til sex mánaða Burðardýr í bráðaaðgerð og hindranir í samstarfi Gögnum nemenda mögulega stolið af Canvas Sjá meira
Á annað hundrað eftirskjálftar Gunnar B. Guðmundsson, jarðskjálftafræðingur hjá Veðurstofu Íslands, segir að á annað hundrað eftirskjálftar hafi fylgt jarðskjálftanum sem varð klukkan rúmlega hálftíu í kvöld norðaustur af Grindavík. Þeir stærstu hafa verið um 3 stig á richter en stóri skjálftinn var 4,7 stig. 29. maí 2009 23:44
Líklega um eðlilegar jarðskorpuhreyfingar að ræða Allstór jarðskjálfti varð á svæði um 11 kílómetra suðvestur af Hafnarfirði klukkan 21:33 í kvöld. Skjálftinn varð nánast undir Reykjanesbraut nálægt Kúgerði, segir Sigurður Þ. Ragnarsson jarðeðlisfræðingur. Fyrstu tölur bentu til að hann væri 3,9 á Richter en endurreiknaðar tölur Evrópsku jarðskjálftamiðstöðvarinnar benda til þess að hann hafi verið 4,8 á Richter og á um tveggja kílómetra dýpi, segir Sigurður. 29. maí 2009 21:40
Íbúi í Grindavík: Hélt að um Suðurlandsskjálfta væri að ræða Sigmar Eðvarðsson, bæjarfulltrúi í Grindavík, segir jarðskjálftann sem varð klukkan rúmlega hálftíu í kvöld hafa staðið í 4 til 5 sekúndur. Ár er liðið frá Suðurlandsskjálftanum og segir Sigmar að hann hafi í fyrstu talið að um annan slíkan skjálfta hafi verið ræða. Hann hafi ekki áttað sig ekki á því að upptök skjálftans væru í grennd við bæinn. 29. maí 2009 22:55
Lögreglu ekki borist tilkynningar um tjón Lögreglunni á Suðurnesjum hefur ekki borist neinar tilkynningar um tjón vegna jarðskjálftann sem varð klukkan hálf tíu í kvöld norðvestan af Grindavík. 29. maí 2009 22:14