Innlent

Líklega um eðlilegar jarðskorpuhreyfingar að ræða

Sigurður Ragnarsson.
Sigurður Ragnarsson.
Allstór jarðskjálfti varð á svæði um 11 kílómetra suðvestur af Hafnarfirði klukkan 21:33 í kvöld. Skjálftinn varð nánast undir Reykjanesbraut nálægt Kúgerði, segir Sigurður Þ. Ragnarsson jarðeðlisfræðingur. Fyrstu tölur bentu til að hann væri 3,9 á Richter en endurreiknaðar tölur Evrópsku jarðskjálftamiðstöðvarinnar benda til þess að hann hafi verið 4,8 á Richter og á um tveggja kílómetra dýpi, segir Sigurður.

Nokkrir litlir eftirskjálftar hafa fylgt í kjölfarið á svæðinu all vestur af Grindavík.

Sigurður segir að ekkert annað bendi til þess að um eðlilega jarðskorpuhreyfingar á þessu svæði sé um að ræða og að búast megi við óróa á svæðinu í kjölfar skjálftans, enda skjálftinn verið með þeim stærri sem verða almennt á þessu svæði, segir Sigurður.

Skjálfti á þessari stærðargráður bendir sjaldnast til þess að um einhverskonar eldsumbrot neðanjarðar sé að ræða og því ástæðulaust að óttast nokkuð eins og staðan er nú, segir Sigurður.
















Fleiri fréttir

Sjá meira


×