Tugmilljóna kosningabarátta skilar sér í ESB könnun 6. maí 2009 20:46 Ragnar Arnalds. „
Það er alltaf spurning um það hvernig spurt er," segir Ragnar Arnalds, formaður Heimssýnar, um skoðana könnun Gallups Capacent sem RÚV greindi frá í kvöld. Þar kom fram að 61,2 prósent vilja fara í aðildarviðræður við ESB. Þá voru rétt tæp 27 prósent sem voru alfarið á móti því. Tæp tólf prósent tóku ekki sérstaka afstöðu til málsins. Ragnar bendir á að stutt sé síðan Fréttablaðið birti könnun þar sem meirihluti reyndist á móti inngöngu í ESB. Þar var einfaldlega spurt hvort viðkomandi væri hlynntur því að Ísland gengi í Evrópusambandið. „Ef fólk er spurt hvort það vilji ganga í sambandið þá er svarið annað," segir Ragnar en hann bendir á að niðurstaðan nú sé einnig afrakstur mikillar kosningaherferðar sem hann tengir meðal annars við heimasíðuna sammála.is. Sú síða er þverpólitísk og vill reyna á aðildarviðræður. Ragnar telur tugmilljóna auglýsingabarátta sé einfaldlega að skila sér í góðri niðurstöðu ESB-sinna í könnun Gallups. „Það er líka ákveðin forvitni sem ræður þessari niðurstöðu," segir Ragnar og bendir á að þeir sem vilja rétt kíkja í pakkann, eins og hann orðar það, svari nú játandi, sem og þeir sem eru einarðir stuðningsmenn þess að fara í aðildarviðræður. Heimssýn er alfarið á móti aðildarviðræðum, þeir hafa barist fyrir könnunarviðræðum þess í stað. „Það er ekkert sem kemur á óvart i þessu," segir Ragnar og bætir við að hann óttist ekki niðurstöðuna verði farið í þjóðaratkvæðagreiðslu. „Þjóðin mun alltaf kolfella þetta," segir hann að lokum óttalaus um framtíð Íslands.
Mest lesið Stígur fram sem „alræmdur faðir“ í Vesturbænum Innlent Samfylkingin mótmælti tillögu borgarstjóra Innlent Mikill munur á fjölda útskrifaðra úr framhaldsskóla eftir grunnskólum Innlent Á hreinu að Valdimar hefði fengið bæjarstjórastólinn Innlent Þrjú hundruð sagt upp hjá Berjaya Innlent Þarf að greiða hálfa milljón úr eigin vasa vegna B5 Innlent Veit ekki hvort hann hafi misst tökin á öldungadeildinni Erlent Lokanir í Hvalfjarðargöngum um hvítasunnu Innlent Nýtti sér dauðvona mann i auglýsingaskyni Innlent Trump sendir 5.000 hermenn til Póllands Erlent Fleiri fréttir Meirihlutaviðræðræður tilkynntar í Mosfellsbæ í dag og Hildur hittir oddvita Nýr meirihluti í sameinuðu sveitarfélagi Fær engin símtöl: „Ekkert spenntur fyrir því að vera kostur, hvað, númer fimm?“ Guðjón skipaður í embætti forstjóra Sjúkrahússins á Akureyri Segir ETS-kerfið þegar hafa bitnað á flugi til Íslands Lokun gistiskýlis fyrir hælisleitendur sé áfangasigur Enn unnið að myndun meirihluta og gistiskýlinu í Borgartúni lokað Fengu ekki Baldur Samfylkingin mótmælti tillögu borgarstjóra Á hreinu að Valdimar hefði fengið bæjarstjórastólinn Áratuga fjársvelti námsgagna bitni á skólastarfi á öllum stigum Lokanir í Hvalfjarðargöngum um hvítasunnu „Það sem við hófum árið 1986 ætlum við að klára árið 2026“ Stígur fram sem „alræmdur faðir“ í Vesturbænum Vætusamt veður fram á mánudag Mikill munur á fjölda útskrifaðra úr framhaldsskóla eftir grunnskólum Björguðu húsi frá því að verða eldi að bráð Flugmenn gleyma því að þeir séu í flughermi Einn fluttur á slysadeild eftir mótorhjólaslys Þarf að greiða hálfa milljón úr eigin vasa vegna B5 Fær 5,7 milljónir af því að kona var ráðin en ekki hann Þrjú hundruð sagt upp hjá Berjaya Prince setti svip sinn á tveggja milljóna verk Nýtti sér dauðvona mann i auglýsingaskyni Dramatík í Hafnarfirði Mikil leynd ríkir yfir smáatriðunum Vilhjálmur verður bæjarstjóri „Ég er ekki nógu góður í slíkri skák“ Skraf Sjálfstæðismanna í húsi Snarfara Gabríel Douane fær tólf mánuði til: „Fjarstæðukennt“ að hann hafi óvart tekið símann Sjá meira