Drekaútboði fram haldið eftir áramót 4. október 2009 18:30
Bandaríska fyrirtækið ION GX Technology hefur afþakkað leyfi sem það fékk í sumar til leitar að olíu og gasi á Drekasvæðinu. Ríkisstjórnin hyggst þó ekki leggja árar í bát heldur stefnir að því að opna á ný fyrir umsóknir um sérleyfi til olíuvinnslu strax upp úr áramótum.Bandaríska fyrirtækið hugðist senda sérhæft skip til hljóðbylgjumælinga á Drekasvæðinu í því skyni að selja rannsóknargögnin til olíufélaga. Leyfið var veitt í byrjun sumars og gilti út þetta ár og var því aðeins tímabundið rannsóknarleyfi en ekki sérleyfi til olíuvinnslu, eins og þau sem boðin voru út í byrjun árs. Ákvörðun fyrirtæksins er engu að síður enn eitt áfallið fyrir olíudrauma Íslendinga en samkvæmt upplýsingum frá Orkustofnun tengist hún því að umsækjendurnir tveir um sérleyfi, Aker Exploration og Sagex og Lindir, hættu báðir við.Íslensk stjórnvöld eru þó ekki á því að gefast upp og móta nú næstu skref í olíumálum. Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra kynnti innan ríkisstjórnar í síðustu viku þá tillögu Orkustofnunar að olíuleitarútboðið frá því í vor verði opnað á ný fljótlega eftir áramót. Ekki verði neinn útboðsfrestur, eins og síðast, heldur verði fimm sérleyfi höfð í boði í sjö mánuði, frá 15. febrúar til 15. september, þannig að fyrstur kemur fyrstur fær. Þau olíufélög sem fyrst gefi sig fram geti þannig valið þá reiti á Drekanum sem þau telja vænlegasta. Þar sem slík opnun telst hluti af upphaflega útboðinu verður umdeildum skattareglum ekki breytt.
Mest lesið Töpuðu tæpum hundrað milljónum Innlent Milljónir í sekt fyrir að bakka á konu Innlent Þau kvöddu á árinu 2025 Erlent Hitinn fór í 19,8 stig og desembermetið slegið Veður Yfir hundrað handteknir grunaðir um að skipuleggja árásir á gamlársdag Erlent Rússar opna leikhúsið í Maríupól á ný Erlent Klæðning fauk af Stjórnsýsluhúsinu og skemmdi bíla Innlent Seinfeld og Friends-leikari látinn Lífið Tap upp á 130 milljónir og neikvætt eigið fé upp á aðrar 26 Innlent Hvar er opið á aðfangadag? Innlent Fleiri fréttir Tap upp á 130 milljónir og neikvætt eigið fé upp á aðrar 26 Fær íshellaferð ekki endurgreidda Umferðin róleg í kirkjugörðunum Töpuðu tæpum hundrað milljónum Milljónir í sekt fyrir að bakka á konu Þörf á að skerpa á verklagi spítalans í heimilisofbeldismálum Engin jólamessa vegna rafmagnsleysis Klæðning fauk af Stjórnsýsluhúsinu og skemmdi bíla Gleðileg jól, kæru lesendur Einn fluttur á sjúkrahús eftir bílslys Skiluðu hagnaði á kosningaári Hátíðarveisla á kaffistofu Samhjálpar: „Það er ró og friður yfir fólki“ Björgunarsveitin kölluð út í fokverkefni Grjóthrun undir Eyjafjöllum Fátækari eftir að hafa svindlað á ferðakonum Arion banki varar við svikaherferð Innanlandsflugi aflýst Foreldrar skipverjans fá áheyrn í Hæstarétti Hvar er opið á aðfangadag? Innflytjendamálin almenningi efst í huga Bæta við allt að 200 íbúðum og mathöll í Spöngina Maður í umferðarslysi reyndist fíkniefnasali Minni rekstrarkostnaður fyrir eigendur bensínháka Hafnar „jólakveðju“ ríkisins Hefði þurft hjólbörur undir öll verðlaunin sín Ýmis ráð til taugatrekktra á Þorláksmessu Ekkert því til fyrirstöðu að Ásthildur Lóa verði aftur ráðherra Óvissa um ráðherraskipan og skata fyrir byrjendur Maðurinn fundinn Sigríður Halldórsdóttir nýr ritstjóri Kastljóss Sjá meira