Innlent

Keilufellsfórnarlamb nú árásamaður

Haukur Holm. skrifar

Níu menn eru í haldi lögreglu eftir líkamsárás í Breiðholti og tveir eru á sjúkrahúsi, annar með höfuðáverka. Einn árásarmannanna var áður fórnralamb í Keilufellsárásinni.

Árásin átti sér stað í fjölbýlishúsinu Kríuhólum 10 eftir hádegið. Allir mennirnir sem að málinu koma eru Pólverjar, en einhverjir þeirra leigja íbúð á sjöttu hæð hússins.

Ástæða átakanna er enn sem komið er óljós, en verið er að yfirheyra mennina. Ekki er talið að neinum vopnum eða bareflum hafi verið beitt, heldur hnefahöggum og spörkum. Einn þeirra sem er í haldi lögreglu nú hlaut áverka í grófri líkamsárás í Keilufelli á síðasta ári og mikið var fjallað um. Það skýrist ekki fyrr en síðar í kvöld eða á morgun hvort farið verður fram á gæsluvarðhald yfir einhverjum þeirra sem eru í haldi lögreglunnar.

Tveir menn voru fluttir á slysadeild Landspítalans. Að sögn læknis þar er annar þeirra með höfuðáverka og hefur hann verið lagður inn á sjúkrahúsið, en hann er ekki talinn vera í lífshættu. Hinn er með minni áverka, en víða á líkamanum . Honum verður haldið á sjúkrahúsi fram eftir kvöldi til eftirlits. Íbúar í húsinu sem Stöð 2 ræddi við í dag sögðu ónæði hafa fylgt íbúum íbúðarinnar, en fólki var brugðið við líkamsárásina í dag.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×