Ellefu atvinnulausir með sinn eigin sjóð 8. desember 2009 05:00 Skagaströnd. Starfsmenn Vinnumálastofnunar halda utan um sérstakan Tryggingasjóð sjálfstætt starfandi einstaklinga. Sjóðurinn hefur greitt ellefu manns atvinnuleysisbætur í ár.Fréttablaðið/Hilmar Guðmundsson
Það kostar um 3,3 milljónir króna á ári að reka sérstakan sjóð um atvinnuleysisbætur til bænda, smábátasjómanna og vörubifreiðastjóra. Um ein milljón af kostnaðinum fer í laun ráðherraskipaðrar úthlutunarnefndar. Sjóðurinn greiddi 8,7 milljónir króna í atvinnuleysisbætur til fjórtán manns á síðasta ári. Tryggingasjóður sjálfstætt starfandi einstaklinga var settur á fót með lögum vorið 1997 og eru lögin óbreytt frá þeim tíma. Heimild til að fleiri atvinnugreinar sjálfstætt starfandi fái aðild að sjóðnum hefur aldrei verið nýtt. Í ár hafa sjóðnum borist ellefu umsóknir og hafa allar fengið jákvæða afgreiðslu, að sögn Líneyjar Árnadóttur, forstöðumanns Vinnumálastofnunar á Skagaströnd. Í fyrra var einni umsókn synjað en fjórtán teknar til greina. Allar tólf umsóknirnar sem bárust 2007 voru teknar til greina. Skipting bótagreiðslna milli stéttanna þriggja sést í töflu sem fylgir fréttinni. Skrifstofa Vinnumálastofnunar á Skagaströnd annast rekstur sjóðsins og tók stofnunin 2,3 milljóna umsýsluþóknun vegna rekstrarins í fyrra. Sérstök ráðherraskipuð úthlutunarnefnd hefur það hlutverk að fara yfir umsóknir bænda, smábátasjómanna og vörubifreiðastjóra. Samkvæmt upplýsingum frá Vinnumálastofnun fær nefndin samtals um eina milljón króna í nefndarlaun á ári. Að sögn Sigurðar P. Sigmundssonar, sviðsstjóra hjá Vinnumálstofnun, er Tryggingasjóður sjálfstætt starfandi einstaklinga fjármagnaður með tryggingagjaldi viðkomandi atvinnugreina. Gjaldi þessara stétta er haldið aðskildu og það lagt í þennan sjóð en ekki hinn almenna atvinnuleysistryggingasjóð. Að jafnaði hafa um fimmtán milljónir króna verið greiddar inn í sjóðinn á ári hverju. Að sögn Sigurðar mun sú fjárhæð hækka árið 2009 í samræmi við hækkun tryggingagjalds. Tryggingasjóðurinn átti um 330 milljóna króna eigið fé um síðustu áramót. 104 milljónir króna voru geymdar á bankareikningi hjá Byr en afgangurinn er varðveittur sem inneign hjá ríkissjóði.peturg@frettabladid.is
Tengdar fréttir Styrkir til maka aldrei greiddir Á heimasíðu Vinnumálastofnunar kemur fram að Tryggingasjóður sjálfstætt starfandi einstaklinga geti greitt atvinnusköpunarstyrki til atvinnulausra maka smábátasjómanna, bænda og vörubifreiðastjóra, uppfylli þeir ákveðin skilyrði. Styrkirnir geti samsvarað hámarksbótum úr sjóðnum, sem eru 6.900 kr. á dag líkt og almennar atvinnuleysisbætur, og má greiða þá í allt að hálft ár. 8. desember 2009 04:45 Mest lesið Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Innlent „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Innlent Trump vill ekki flýta sér Erlent Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Innlent Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Innlent „Ekki í lífshættu“ Innlent Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Innlent „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ Innlent Fleiri fréttir „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Sjá meira
Styrkir til maka aldrei greiddir Á heimasíðu Vinnumálastofnunar kemur fram að Tryggingasjóður sjálfstætt starfandi einstaklinga geti greitt atvinnusköpunarstyrki til atvinnulausra maka smábátasjómanna, bænda og vörubifreiðastjóra, uppfylli þeir ákveðin skilyrði. Styrkirnir geti samsvarað hámarksbótum úr sjóðnum, sem eru 6.900 kr. á dag líkt og almennar atvinnuleysisbætur, og má greiða þá í allt að hálft ár. 8. desember 2009 04:45