Tólf þúsund heimili með mjög þunga greiðslubyrði Lóa Pind Aldísardóttir skrifar 11. júní 2009 18:41
Yfir fimm þúsund íslensk heimili skulda svo mikið að níu af hverjum tíu krónum sem heimilisfólk hefur til ráðstöfunar ættu að fara í afborganir lána. Tólf þúsund heimili eru með mjög þunga greiðslubyrði. Þetta kom fram á fundi í Seðlabankanum í dag þar sem farið var yfir stöðu íslenskra heimila í kjölfar bankahrunsins. Hagfræðingar Seðlabanka hafa unnið að því að greina skuldastöðuna undanfarna mánuði, þetta er þriðja kynningin og nú eru í fyrsta sinni tekjur heimila komnar inn í dæmið og bílalánin sömuleiðis. Nú er ljóst að um helmingur heimilanna borga innan við 10% af ráðstöfunartekjum sínum í afborganir af bílum. Ellefu prósent þessara heimila eru hins vegar að borga meira en 30% af ráðstöfunartekjum í afborganir af bílalánum. Miðað er við þolanleg greiðslubyrði heimilis sé innan við fjörutíu prósent. Þessi gögn sýna hins vegar að 22% heimila eru að borga meira en fjörutíu prósent - og að eitt af hverjum sex heimilum þurfa að greiða aðra hvora krónu sem kemur inn í heimilisbókhaldið eftir skatta og lífeyrisgreiðslur - í afborganir af íbúða, bíla og yfirdráttarlánum. Athygli vekur að greiðslubyrðin hjá sjö prósentum heimilanna er yfir níutíu prósent. Það þýðir að um 5200 heimili í landinu - ættu að vera greiða níu af hverjum tíu krónum sem þau hafa til ráðstöfunar í afborganir af lánum, en gera það varla, og um sex þúsund heimili eru með greiðslubyrði upp á 80% af ráðstöfunartekjum.
Mest lesið Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Innlent Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Innlent Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Innlent Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Innlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Innlent Erlendir fjölmiðlar fylgjast með: Trump hafi þvingað Íslendinga í kjörklefana Erlent Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Innlent „Þetta gæti ekki verið meira spennandi“ Innlent Þorgerður beygði af í Bítinu Innlent Fleiri fréttir Átröskun vangreind hjá strákum og sífellt yngri börn þurfa aðstoð Vísbendingar um aukna kjörsókn Kjörsókn meiri en á sama tíma í síðustu þingkosningum „Þetta gæti ekki verið meira spennandi“ Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Allt bendi til lítils jökulshlaups Bjart og þurrt þegar þjóðin gengur að kjörborðinu Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Hnífjafnt í síðustu könnuninni Umræðan hafi verið ruglingsleg og á lágu plani Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Símtöl almennt málefnaleg en dónaskapur inni á milli Aldrei komið í þvílíkt fjölmenni þar sem er svona mikil þögn Jákvæð „sjálfsmyndarkrísa“ í Brussel Forystukonum ríkisstjórnarinnar brugðið vegna alvarlegra hótana Líflátshótanir, þandar taugar og bein útsending frá norsku konungshöllinni Voru á Íslandi þegar maðurinn var drepinn Missti öxi sem hann hafði inni á sér og var handtekinn Uppsagnirnar hafi komið eins og reiðarslag Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Brynjar tekur við af Líf Jón Hrói nýr sveitarstjóri í Langanesbyggð Efast um að skylt verði að hefja aðildarviðræður þótt já verði ofan á Armslengd eigi sérstaklega vel við um Fjölmiðlanefnd Inga segir já Örfáir töldu Ingu hafa staðið sig best Tuttugu prósent búin að greiða atkvæði Sjá meira