Yfir 350 ræður haldnar í Icesave Heimir Már Pétursson skrifar 7. desember 2009 12:06 Lokaspretturinn í annarri umræðu um Icesave hefst í dag. Mynd/ Valgarður.
Lokaspretturinn í annarri umræðu um Icesavefrumvarp ríkisstjórnarinnar hefst í hádeginu á Alþingi. Atkvæði verða greidd um frumvarpið á morgun. Haldnar hafa verið yfir 350 ræður og gerðar meira en 2.000 athugasemdir í málinu. Samkomulag tókst á fundi Ástu Ragnheiðar Jóhannesdóttur forseta Alþingis með stjórnarandstöðunni á föstudag um lok annarrar umræðu Icesave frumvarps ríkisstjórnarinnar. Umræðan hefst að nýju klukkan hálf eitt í dag og stendur að minnsta kosti fram að þingflokksfundum sem hefjast klukkan tvö. Eftir þingflokksfundina klukkan þrjú mælir Árni Páll Árnason félags- og tryggingamálaráðherra fyrir þremur frumvörpum þannig að þau komist til nefndar. Eftir það gæti icesaveumræðan hafist á nýjan leik og ef svo fer er ómögulegt að segja til um hvenær henni lýkur í dag eða kvöld. Hins vegar er samkomulag um að annarri umræðu ljúki í dag og atkvæðagreiðsla um málið fari fram í hádeginu á morgun. Að henni lokinni fer málið til fjárlaganefndar til lokaafgreiðslu. Reikna má með að stjórnarandstaðan reyni að knýja á um að þar fari fram löng umræða um málið, en samkvæmt heimildum fréttastofunnar stefna stjórnarflokkarnir á að afgreiða málið endanlega í þriðju umræðu og atkvæðagreiðslu í þinginu fyrir jól. Samkvæmt starfsáætlun Alþingis átti þingið að fara í jólaleyfi hinn 17. desember en nú eru menn að gera sér vonir um að ljúka þingstörfum hinn 22. desember eða daginn fyrir Þorláksmessu. Þingmenn hafa nú talað um Icesave í yfir 90 klukkustundir frá því málið kom aftur til kasta þingsins í haust, og eiga stjórnarandstöðuþingmenn heiðurinn af bróðurparti ræðutímans. Þeir hafa haldið 207 ræður og gert 1824 athugasemdir við ræður annarra. Stjórnarþingmenn hafa haldið 149 ræður og gert 238 athugasemdir í umræðunni. Alls hafa því verið haldnar 356 ræður og gerðar 2.062 athugasemdir í umræðunni um Icesave það sem af er.
Mest lesið Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Innlent „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Innlent Trump vill ekki flýta sér Erlent Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Innlent Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Innlent „Ekki í lífshættu“ Innlent Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Innlent „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ Innlent Fleiri fréttir „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Sjá meira