Innlent

Vopnaðar þotur æfðu aðflug

Álfheiður Ingadóttir
Álfheiður Ingadóttir

Danskar F16 orrustuþotur sem staddar voru hér á landi við loftrýmisgæslu æfðu aðflug að Akureyrarflugvelli 21. og 22. mars síðastliðinn. Þær voru vopnaðar vélbyssum og léttum flugskeytum.

Þetta kemur fram í svari Össurar Skarphéðinssonar utanríkisráðherra við fyrirspurn Álfheiðar Ingadóttur, þingmanns Vinstri grænna, sem birt var á vef Alþingis í gær.

Nauðsynlegt er að æfa aðflug að Akureyrarflugvelli af öryggisástæðum, og verður sama fyrir­komulag haft á þegar aðrar þjóðir senda þotur til eftirlits.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×