Innlent

Líkja eftir sprengjuhótun

Síðasta æfing af svipuðu tagi var árið 2004.Mynd / víkurfréttir
Síðasta æfing af svipuðu tagi var árið 2004.Mynd / víkurfréttir

 Viðbrögð við sprengjuhótun og nauðlendingu verða æfð á Keflavíkurflugvelli í dag. Keflavíkurflugvöllur ohf. og lögreglustjórinn á Suðurnesjum efna til æfingarinnar í samvinnu við almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra. Líkt verður eftir sprengjuhótun um borð í flugvél sem endar síðan með slysi eftir lendingu.

300 manns taka þátt í æfingunni og eru þeir meðal annars frá slökkviliði, lögreglu og Landhelgisgæslunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×