Ástþór fór heim til lögreglustjórans 18. apríl 2009 16:52 Stefán Eiríksson tók ágætlega í heimsókn Ástþórs.
Frambjóðandi Lýðræðishreyfingarinnar, Ástþór Magnússon, fór að heimili Stefáns Eiríkssonar í dag og hvatti hann til þess að bregðast við kærum sem hann hefur lagt fram gegn RÚV undanfarið. Áður fór Ástþór upp í höfuðstöðvar Ríkissjónvarpsins og kallaði lögreglu á vettvang. Hann var þá vopnaður gjallahorni og gekk hringinn í kringum húsið með sírenuhljóð á. Með þessu vildi hann vekja athygli á meintri mismunu framboða. Til að mynda vantaði hlekk inn á síðu Lýðveldishreyfingarinnar á kosningavef RÚV auk kosningalista flokksins. Þrátt fyrir allnokkrar aðfinnslur þá var lítið gert í málinu. Það var ekki fyrr Ástþór fór mikinn í útvarpsviðtali í Síðdegisútvarpinu sem hlekkurinn var settur inn á síðuna. Nú hafa listarnir verið birtir á heimasíðu RÚV. „Ég fór fyrst á lögreglustöðina en þeir vildu ekki tala við," sagði Ástþór sem fór rakleiðis niður á lögreglustöð eftir andófið við RÚV, til þess að ítreka kæruna sem hann lagði inn þann fimmta apríl síðastliðinn. Að sögn Ástþórs vildi enginn ræða við hann á lögreglustöðinni svo úr varð að hann fór að heimili Stefáns Eiríkssonar lögreglustjóra. „Ég benti Stefáni á að þetta gæti ógilt alla kosninguna og að þetta væri bara kriminalt," sagði Ástþór um samtal sitt við lögreglustjórann. Hann segir að samskipti þeirra hafi verið á kurteysu nótunum, hann hafi skilið gjallahornið eftir í þetta skiptið. Fulltrúi Lýðræðishreyfingarinnar sendi svo fréttatilkynningu út síðdegis þar sem flokkurinn segist vera með 32,5 prósent fylgi samkvæmt nýrri skoðanakönnun á mbl.is. Þegar betur er að gáð þá má sjá að könnuninn er á heimasíðu Hvíta riddarans. Ábyrgðarmaðurinn heitir Loftur Þór Þórunnarson. Alls hafa 1170 kosið í könnuninni samkvæmt tilkynningu frá hreyfingunni. Óljóst er þó hvaða markhóp Hvíti riddarinn höfðar til, eða hvernig kynja- og búsvæðaskipting er. Hreyfingin mældist síðast með 0,4 prósent fylgi í könnun Gallup capacent. Engu að síður, á heimasíðu Hvíta Riddarans, þá er Lýðræðishreyfingin sigurstangleg fyrir næstu kosningar.
Mest lesið Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Innlent Gerir Repúblikönum á þingi enn lífið leitt Erlent „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Innlent Vegasjoppan sem byggði kamar fyrir Kristján tíunda Innlent Bandaríkjamenn ráðast á Íran Erlent Sósíalisti fékk boðsferð til Kína Innlent Samþykkt frumvarpsins framkalli ekki sigurtilfinningu Innlent Hlekktist í lendingu á Egilsstaðaflugvelli Innlent „Netglæpamenn munu nýta sér þetta hratt og á skaðlegan hátt“ Innlent Safnað fyrir foreldra Bergs Ottós Innlent Fleiri fréttir Samþykkt frumvarpsins framkalli ekki sigurtilfinningu Vegasjoppan sem byggði kamar fyrir Kristján tíunda Hlekktist í lendingu á Egilsstaðaflugvelli Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Sósíalisti fékk boðsferð til Kína Olíumengun í Kópavogslæk „Netglæpamenn munu nýta sér þetta hratt og á skaðlegan hátt“ No Borders hvetja til andspyrnu gegn brottfararstöð Hringbraut eins og rússnesk rúlletta Handtekinn á bíl með nagladekkjum „Þetta er hreinn uppspuni“ Fjöldi netbrota fjórfaldast og dómsmálaráðherra í beinni um brottfararstöð „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Umdeild brottfararstöð leidd í lög Fimm úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald Hætta aftur rannsókn á Múlaborgarmálum Íbúar á flæðiskeri staddir eftir samdrátt í umsvifum Icelandair Telja Ríkisútvarpið bullandi hlutdrægt í ESB-málinu Landris og kvikusöfnun heldur áfram Trúir ekki öðru en að nýir herrar fjarlægi „níðstöngina“ Enginn þurfi að óttast að vera skilinn frá maka sínum Safnað fyrir foreldra Bergs Ottós Áfrýjar ekki dómi fyrir brot á Múlaborg Gervigreindin aukið hraða netsvika gríðarlega Góður gangur í fundarhöldum um þinglok Enn tekist á um þingstörfin og gervigreindin eykur hættuna á netglæpum Jóna Árný endurráðin bæjarstjóri „Fórnarlambið látið borga brúsann“ Skoða hvernig brotthvarfi Bandaríkjanna úr hafrannsóknum verður mætt Rúmlega átján þúsund skiluðu ekki framtali Sjá meira