Sveppi í nýju barnaleikriti Gísla Rúnars 23. september 2009 05:00 Sveppi mun leika aðalhlutverkið í nýju verki Gísla Rúnars.
Kvikmyndin Algjör Sveppi og leitin að Villa verður frumsýnd á fimmtudaginn, en stjarnan Sveppi er strax farinn að pæla í næsta verkefni. Hann er ekkert að flækja hlutina og breytir bara endingunni: fer úr Algjör Sveppi í Algjör sveppur. „Já, það stendur til að setja upp nýja leikgerð eftir Gísla Rúnar Jónsson, sem hann hefur gert upp úr plötunni Algjör sveppur,“ segir Sveppi. Platan kom út árið 1978 og er fyrir löngu orðin klassísk. „Það er svona verið að skoða handritið núna og fikta í því,“ segir Sveppi sem mun leika aðalhlutverkið. Björgvin Franz Gíslason leikur á móti honum, Felix Bergsson leikstýrir og Jón Ólafsson sér um tónlistina. Sveppi segir að frumsýnt verði fljótlega eftir áramót en ekki er búið að ákveða hvar verður sýnt. En er Sveppi ekkert orðinn leiður á að vera alltaf í barnasýningum? „Ég neita því ekki að ég var kominn með hálfgert ógeð eftir Kalla á þakinu og Gosa, en svo kemur bara alltaf eitthvað nýtt ögrandi verkefni. Dramatísku hlutverkin eru heldur ekkert að heilla mig. Mig myndi ekkert langa til að leika í Sjálfstæðu fólki. Mig langar ekkert að leika í einhverju sem mér finnst leiðinlegt. Ég er söngleikjavitleysingur og ætli Frank-N-Furter sé ekki bara draumahlutverkið.“ En hvað með nýju bíómyndina – er hún jafn góð og Skoppa og Skrítla? „Þeirra mynd er fyrir eins árs og upp úr, en mín er fyrir þriggja ára og upp úr, svo þetta er ekki samanburðarhæft,“ segir Sveppi. „Þótt myndin sé fyrir börn verður að vera eitthvað fyrir fullorðna líka. Eftir að ég fór að fara með krakkana mína í bíó fattaði ég að það eru bestu myndirnar sem maður hefur gaman af að fara á sjálfur, eins og sumar þessara Disney-mynda, Shrek, Toy Story og Ice Age svo ég nefni eitthvað. Það er sumt í Algjörum sveppi sem bara fullorðnir skilja.“- drg
Mest lesið Leikkonan Hayden Panettiere er látin Lífið Barnalán hjá Brynju Dan Lífið Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Lífið Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Lífið Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Lífið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Lífið Þórdís Elva er gengin út Lífið Bestu hlutverk Hayden Panettiere Bíó og sjónvarp Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Lífið Svana á tímamótum og selur slotið Lífið Fleiri fréttir Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Útför Gunnars Þórðarsonar Dreymir um að halda næstu Kaleo-tónleika á Vestfjörðum Emmsjé edrú í sjö ár Fór á skeljarnar undir almyrkvanum Sjá meira