Frestar plötu vegna náms 5. október 2009 06:00 Ísgerður Elfa stundar nám auk þess að semja efni fyrir barnaplötu og taka þátt í Wipeout. Fréttablaðið/anton
Leikkonan Ísgerður Elfa Gunnarsdóttir hefur nóg á sinni könnu þessa dagana því auk þess að stunda nám við Háskóla Íslands vinnur hún að nýrri barnaplötu og er á leið til Argentínu sem þátttakandi í hinum vinsæla þætti Wipeout. „Ég hef verið að vinna að barnaplötu með frænda mínum, Magnúsi Jónssyni tónlistarmanni. Ég fékk hugmyndina þegar ég vann við Stundina okkar og í kjölfarið settist ég niður og samdi nokkra lagatexta og áður en ég vissi af var ég komin með texta við sextán lög,“ útskýrir Ísgerður Elfa. Hún segist hafa sótt innblástur í eigin barnæsku og fjallar einn textinn meðal annars um njósnafélag, en Ísgerður Elfa var meðlimur í einu slíku sem barn. Til stóð að platan kæmi út fyrir jól en ákveðið hefur verið að fresta útgáfunni um óákveðinn tíma. „Við byrjuðum að vinna að plötunni núna í haust og ætluðum að gefa hana út fyrir jólin, en þar sem við erum bæði í námi þá urðum við að fresta því.“ Spurð hvort hún muni fylgja plötunni eftir með tónleikaröð segist hún ekki hafa hugsað út í það. „Við erum hvorki búin með plötuna né komin með útgefanda þannig að ég ætla að klára það fyrst áður en ég fer að skipuleggja tónleika,“ segir hún og hlær. Ísgerður flaug til Argentínu nú í morgunsárið. Aðspurð segist hún fá í magann við tilhugsunina um það sem bíður hennar á Wipeoutbrautinni, en að hún hafi einfaldlega ekki getað sagt nei við annari eins ævintýraferð. „Ég er viss um að þetta verði mikið ævintýri og ég mundi líklega sjá mikið eftir því hefði ég afþakkað boðið. Vinir mínir eru sérstaklega spenntir og ég er ekki frá því að af öllu sem ég hef tekið mér fyrir hendur séu þeir spenntastir fyrir þessu,“ segir Ísgerður Elfa að lokum. - sm
Mest lesið Leikkonan Hayden Panettiere er látin Lífið Barnalán hjá Brynju Dan Lífið Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Lífið Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Lífið Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Lífið Þórdís Elva er gengin út Lífið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Lífið Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Lífið Ólafur Darri herjar á ringlaðan Jamie Dornan Bíó og sjónvarp Svana á tímamótum og selur slotið Lífið Fleiri fréttir Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Útför Gunnars Þórðarsonar Dreymir um að halda næstu Kaleo-tónleika á Vestfjörðum Emmsjé edrú í sjö ár Fór á skeljarnar undir almyrkvanum Einelti kvenna á vinnustað lúmskt og einkennist af gaslýsingu Hvað veistu um… kirkjur á Íslandi? Þjóðir sem eigi í vopnuðum átökum megi ekki halda Eurovision Sjá meira