Innlent

Fjögur umferðaróhöpp á Vestfjörðum

Fjögur umferðaróhöpp urðu í umdæmi lögreglunnar á Vestfjörðum í vikunni sem leið. Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar vikuna 18 - 25 janúar. Flutningabíll valt sunnan við Hólmavík um hádegisbil þann 20. janúar en ekki urðu slys á fólki. Þá fór fólksbíll út af veginum á Kirkjubólshlíð aðfararnótt 20. janúar og hafnaði niður í fjöru. Þrír voru í bílnum og sluppu þeir ómeiddir. Tvö önnur minni háttar óhöpp urðu. Lögregla vill benda vegfarendum á að akstursskilyrði eru mjög misjöfn og breytast hratt í umhleypingum þeim sem núna eru.












Fleiri fréttir

Sjá meira


×