Innlent

Lyfjuræningi grunaður um fleiri en eitt rán

Maðurinn, sem var handtekinn síðdegis í gær eftir að hafa framið vopnað rán í Lyfju við Lágmúla í Reykjavík með því að hóta starfsfólkinu með öxi, er enn í gæslu lögreglu, grunaður um að hafa sitthvað fleira misjafnt á samviskunni.

Meðal annars að hafa framið vopnað rán í lyfjaverslun í síðustu viku, þar sem ræninginn hótaði starfsfólkinu líka með öxi. Sá ræningi hefur ekki fundist en margt þykir líkt með þessum tveimur ránum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×