FH-ingar bjóða hælisleitendum á leikinn í kvöld 15. júlí 2009 16:08 FH-Mafían og Pétur Stephensen.
Stuðningsmaður FH fékk á dögunum þá hugmynd að bjóða hælisleitendum sem dveljast í Reykjanesbæ á knattspyrnuleik milli FH og Aktobe frá Kasakstan. Hann hafði samband við forráðamenn FH sem voru meira en fúsir til að bjóða hælisleitendunum á leikinn sem fram fer í kvöld og er í Meistaradeild Evrópu. Elfar Þór Erlingsson er 32 ára, borinn og barnfæddur FH-ingur eins og hann segir sjálfur. Hann starfar sem sjálfboðaliði hjá Rauða Krossinum í Hafnarfirði og fer í því starfi oft í heimsókn til hælisleitenda í Reykjanesbæ. Einn daginn þegar hann leit þar við sá hann nokkra þeirra vera að horfa á knattspyrnu í sjónvarpinu. „Þá fékk ég þessa flugu í hausinn - að bjóða þeim á Evrópuleikinn," segir Elfar sem hafði því næst samband við forráðamenn FH sem voru boðnir og búnir að bjóða hælisleitendum á leikinn. „Þeir eru meira en velkomnir. Þetta fólk á ekki mikinn pening og okkur finnst sjálfsagt að gera eitthvað fyrir það," segir Pétur Stephensen, framkvæmdastjóri knattspyrnudeildar FH. „Við viljum láta gott af okkur leiða í einu og öllu og þetta er ein leið til þess." Elfar segir aðstæður flóttamannana ekki eins og best verður á kosið. Allra síst hvað varðar afþreyingu. „Þeir komast á bókasafnið og í sund, ég held það sé ekki mikið meira. Svo efast ég um að til séu margar bækur á rússnesku á bókasafninu," segir hann. Allir hælisleitendurnir sem þekktust boðið eru karlkyns. Elfar vonast til þess að þeir verði allir FH-ingar hér eftir. „Já ég reyni að hafa áhrif á það," segir hann hlæjandi. „Maður þarf að passa að það sé ekki verið að troða einhverri annarri vitleysu í hausinn á þeim." Dagskrá hælisleitendanna hefst klukkan sex þegar Elfar fer með þá á Dillon Sportbar í Trönuhrauni í Hafnarfirði þar sem FH-mafían svokallaða bíður eftir þeim. Því næst verður gengið yfir í Kaplakrika þar sem leikurinn fer fram. Andstæðingarnir FH eru sem fyrr segir frá Kasakstan. Enginn hælisleitendanna mun þó vera þaðan. „Nei því miður, en einn er frá Úsbekistan, það er næsti bær við," segir Elfar kampakátur.
Mest lesið Nicole er fyrir norðan Lífið Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Lífið Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Lífið Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Lífið Barnalán hjá Brynju Dan Lífið Bestu hlutverk Hayden Panettiere Bíó og sjónvarp Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Lífið Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Lífið Leikkonan Hayden Panettiere er látin Lífið Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Lífið Fleiri fréttir Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Nicole er fyrir norðan Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Sjá meira