Grásleppukarlar skila yfir milljarði í þjóðarbúið Kristján Már Unnarsson skrifar 14. júní 2009 19:29 Mynd úr safni
Gríðarhátt verð fæst nú fyrir grásleppuhrogn og hefur það hækkað um 85 prósent frá því fyrra. Þessi mikla verðhækkun gerir gott betur en að bæta upp aflasamdrátt í grásleppunni og er áætlað að heildaraflaverðmæti fari yfir einn milljarð króna á tveggja mánaða vertíð í ár.Grásleppan er veidd á vorin þegar hún sækir í þaragróðurinn á grunnsævi til að hrygna. Henni hefur fram til þessa að mestu verið hent til baka í sjóinn eftir að búið er að rista á henni kviðinn og ná hrognunum. Þetta er að breytast því markaður hefur opnast í Kína fyrir heilfrysta grásleppu.Þetta er atvinnugrein dreifbýlisins en tæplega þrjúhundruð bátar hafa leyfi til grásleppuveiða, nokkrir þeirra eru gerðir út frá höfninni í Skarðsstöð við Breiðafjörð. Þar kvarta menn undan lélegri veiði í ár. Hjá Landssambandi smábátaeigenda segir Örn Pálsson að minna hafi veiðst um allt land og áætlar tíu prósenta samdrátt í ár, þrátt aukna sókn.En annað gleður grásleppukarla. Hilmar Kristinsson, grásleppusjómaður á Skarði, segir verðið mjög gott og flest bendi til að það fari stígandi.Hilmar fer með grásleppuhrognin á næsta sveitabæ en á Geirmundarstöðum byggðu þau Bryndís Karlsdóttir og Þórður Baldursson upp grásleppuverkun til að mæta samdrætti í sauðfjárrækt. Þarna í sveitinni er sem sagt verið að verka grásleppuhrogn svo þau verði að dýrindis kavíar. Verðið sem sjómenn fá fyrir hverja tunnu er komið upp í 120 þúsund krónur, var 65 þúsund krónur í fyrra.
Mest lesið Tæpum fjögur hundruð þúsund krónum eytt í vorgjöf Innlent „Já, ég er dálítið reiður“ Innlent Sakborningar í Gufunesmálinu mættir í Landsrétt Innlent Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Erlent Skjálfti vegna Írisar innan Sjálfstæðisflokksins í Eyjum Innlent Helgi Bjartur dæmdur í tólf mánaða fangelsi Innlent Hæstiréttur hlýðir ekki á Jón Þór Innlent Gert að greiða miskabætur eftir að hafa nauðgað táningsstúlku Innlent Bein útsending: Inga ávarpar kennara sem ráða ráðum sínum Innlent Eimskip líta smyglið mjög alvarlegum augum Innlent Fleiri fréttir Ók á móti umferð í Hvalfjarðargöng með lögregluna á hælunum Helgi Bjartur dæmdur í tólf mánaða fangelsi Eimskip líta smyglið mjög alvarlegum augum „Já, ég er dálítið reiður“ Matarstefnan bara „orð út í loftið“ Töldu framboðinu ekki til framdráttar að mæta í þáttinn Verð á stökum miða í sund hækkar en árskortið lækkar Árni vill stöðuna þrátt fyrir auglýsingu Skjálfti vegna Írisar innan Sjálfstæðisflokksins í Eyjum Sakborningar í Gufunesmálinu mættir í Landsrétt Bein útsending: Inga ávarpar kennara sem ráða ráðum sínum Hæstiréttur hlýðir ekki á Jón Þór Gert að greiða miskabætur eftir að hafa nauðgað táningsstúlku Sjálfkjörið á Vopnafirði Logi tekur undir mótmæli gegn þátttöku Rússa á Feneyjatvíæringnum Tæpum fjögur hundruð þúsund krónum eytt í vorgjöf Tvö erindi borist Þingvallanefnd vegna tónleika Kaleo „Það gerist ekkert ef ljósin eru slökkt“ Ný atvinnustefna vanmeti stærstu tæknibreytingu samtímans Eftirför lögreglu endaði á Sorpu Tveir handteknu starfsmenn Eimskipa Skorað á Guðmund að snúa aftur heim Slagsmál, falsað ökuskírteini og ölvunarakstur Keyrðu utan í bílinn í eftirförinni Endurskoða gjaldsvæði borgarinnar Verulegt magn fíkniefna og hönnunarbolli í vorgjöf Flogið til Vestmannaeyja til mánaðamóta „Þyngra fyrir fæti að fá vinnu“ Hælisleitendamálin settu þrýsting á Reykjanesbæ Vilja verða áheyrnarfulltrúar og hækka laun sín gríðarlega Sjá meira