Í kapphlaupi um að moka upp makrílnum 14. júní 2009 12:46 Togarinn Faxi tekur troll. MYND/þORVALDUR ÖRN KRISTMUNDSSON
Íslenski síldveiðiflotinn er kominn í æðisgengið kapphlaup um að moka sem mestu upp af makríl. Tilgangurinn er að tryggja sér veiðireynslu áður en stjórnvöld skipta makrílkvóta milli skipa. Fyrir vikið fer mestur hluti aflans í bræðslu.Umdeildar makrílveiðar Íslendinga eru nú að komast í fullan gang og hefur síldveiðiflotinn að mestu fært sig af Jan Mayen svæðinu norðaustur af Íslandi og suðaustur fyrir landið í svokallaðan Rósagarð, þar sem þau veiða makríl í bland við síld.Faxi er á nú landleið og er væntanlegur til Vopnafjarðar í kvöld með 1.500 tonn. Tveir þriðju hlutar aflans er makríll og fer allt í bræðslu. Þá kom Margrét EA inn til Neskaupstaðar í gær með 540 tonn en þar var meirihlutinn síld og aðeins um 50 tonn af makríl.Tólf skip eru nú að veiðum í Rósagarðinum, sem er djúpt út af Suðausturlandi, ekki langt frá lögsögumörkunum við Færeyjar. Þau hafa flest parað sig við makrílveiðarnar, það er draga tvö og tvö saman risastórt flottroll, en þannig þykir hentugast að ná makrílnum. Þannig fékk Faxi sinn afla með öðru Grandaskipi, Ingunni, sem nú veiðir saman með þriðja skipinu frá Granda, Lundey. Þá draga Norðfjarðarskipin Börkur og Birtingur saman troll, Vestmannaeyjaskipin Sighvatur Bjarnason og Kap eru saman, og Hornafjarðarskipin Ásgrímur Halldórsson og Jóna Eðvalds, svo dæmi séu nefnd.Með þessari aðferð keppast þau um að fiska sem mest á skemmstum tíma til að afla sér sem mestrar veiðireynslu áður en íslensk stjórnvöld skipta kvóta á milli skipa en þau hafa aðeins gefið út einn heildarkvóta á makríl, 112 þúsund tonn. Viðmælendur fréttastofu segja kapphlaupið um veiðireynsluna milli útgerða það ákaft að minna sé hirt um að gera verðmætan matfisk úr makrílnum heldur muni hann að mestu fara í bræðslu.Íslendingar stunda veiðarnar í andstöðu við önnur ríki innan Norðaustur-Atlantshafsfiskveiðinefndarinnar, sem ekki hafa viljað viðurkenna rétt Íslendinga til makrílveiða.
Mest lesið „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Kvöldfréttir Sýnar í beinni Innlent Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Innlent „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent „Þetta er bara toppurinn á ísjakanum“ Innlent Fleiri fréttir Á sjúkrahús eftir að hafa flogið af mótorhjólinu Eldur kviknaði á Fiskislóð Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Kominn til Akureyrar eftir alvarlegt slys á skemmtiferðaskipi „Það er verið að dreifa athyglinni, það er verið að auka óvissu“ „Gott og vel við skulum trúa ráðherranum“ Utanríkisráðherra svarar og kona stórslasaðist á hlaupahjóli Ekki um „týndar skýrslur“ að ræða Hart tekist á um ESB Burðardýr Stúarts litla dæmd í sex ára fangelsi Tekinn úr umferð vegna ótrúlegrar brotahrinu Góðu fréttirnar þær að innlend verðbólga sé á undanhaldi Druslur ganga í fjórtánda sinn: „Aldrei verið meiri þörf á því heldur en núna“ Tveir af þremur í fangelsi vegna eldri dóma Air China hefur sölu á flugmiðum frá Íslandi til Kína Verðbólgan eykst enn og borgarstjóri boðar aðgerðir gegn innbrotum Kynna nýtt varanúmer fyrir Neyðarlínuna Vara við hviðum sunnan við Vatnajökul Pallborðið: Nei eða já? Hvalavinir lýsa eftir týndum skýrslum Leggur til breytingar á útivistartíma barna Mikil óhreinindi í ólöglegum peptíðum Fólk að skila sér heim eftir rassskellingu Austurfrétt liggur niðri vegna netárásar Tekið fram að svipting starfsleyfis eigi ekki að vera refsing Umræðan hafi „aftur og aftur snúist um getgátur, misskilning og útúrsnúninga“ Stúlkan fannst heil á húfi „Við hlaupum bara hraðar eftir því sem gestunum fjölgar“ Lögreglan á Norðurlandi eystra lýsir eftir fjórtán ára stúlku Bleikjuvinnslunni breytt í brugghús Sjá meira