Gröndalshús verður gert upp og flutt 21. september 2009 03:15 Ekki liggur fyrir hvert húsið verður flutt. „
Þetta hús skiptir miklu fyrir sögu Reykjavíkur. Það er þarft að heiðra minningu Benedikts Gröndal og alls sem hann stóð fyrir varðandi bókmenntir og vísindi, og eins hefur húsið mjög sérstaka þýðingu í byggingarsögulegu tilliti. Því er mjög ánægjulegt að húsinu verði gert hátt undir höfði,“ segir Svanhildur Konráðsdóttir, sviðsstjóri á menningar- og ferðamálasviði Reykjavíkurborgar. Gröndalshús við Vesturgötu verður gert upp sem hluti af atvinnuátaksverkefninu Völundarverk á vegum borgarinnar. Í kjölfarið verður settur aukinn kraftur í að finna húsinu lóð nálægt núverandi staðsetningu, að sögn Svanhildar. Húsið hefur verið í umsjá Minjasafns Reykjavíkur síðan 2006. Upphaflega stóð til að það yrði flutt í Árbæjarsafnið. Samkvæmt samþykkt menningar- og ferðamálasviðs flyst eignarhald hússins nú frá Minjasafninu yfir til framkvæmda- og eignasviðs borgarinnar. Endurgerð hússins fer fram í verkefninu Völundarverk, þar sem atvinnulausum fagmönnum er boðið upp á námskeið og tímabundna vinnu við að gera upp gömul hús. Að sögn Svanhildar verður ytra byrði hússins endurgert við Vesturgötu, til að hægt verði að flytja það á öruggan hátt. Endurgerðin fari svo að mestu leyti fram á nýjum stað. Ekki liggi fyrir hvar húsinu verði fundin lóð, en til greina komi að flytja það vestur á Granda.- kg
Mest lesið Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri Innlent Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Erlent Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Innlent Vasaþjófnaður aukist að undanförnu Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Fleiri fréttir Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Skipulagt niðurbrot á réttindum launafólks hafi náð til Íslands „Konur upplifa ekki öryggi í íslensku samfélagi“ Sjá meira