Saksóknari Alþjóðaglæpadómstólsins til Íslands 15. maí 2009 17:36 Luis Moreno-Ocampo saksóknari Alþjóðaglæpadómstólsins.
Saksóknari Alþjóðaglæpadómstólsins, Luis Moreno-Ocampo, kom í heimsókn til Íslands í dag, föstudaginn 15. maí. Ocampo kemur hingað til lands í boði lagadeildar Háskólans í Reykjavík, en hann er heiðursgestur á alþjóðlegu málþingi lagadeildar, Domac og Landsnefndar um mannúðarrétt sem haldið verður í Háskólanum í Reykjavík á morgun, laugardaginn 16. maí. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Háskólanum í Reykjavík. Þar segir ennfremur að Luis Moreno-Ocampo sé argentískur lögfræðingur sem hefur gegn stöðu saksóknara við Alþjóðaglæpadómstólinn síðan 2003. Hann var áður saksóknari í Argentínu og varð þekktur fyrir óþreytandi baráttu sína gegn spillingu og mannréttindabrotum sem yfirmenn hersins þar í landi gerðust sekir um. Hann hefur á síðustu dögum og vikum vakið heimsathygli fyrir að krefjast framsals Omars Hassans al-Bashirs, forseta Súdans, fyrir að stuðla að þjóðarmorði í Darfur-héraði í Súdan. Yfirskrift málþingsins sem haldið verður á laugardag er Framfylgd alþjóðalaga er varða gróf mannréttindabrot og mannúðarlög: Samspil alþjóðadómstóla og landsréttar. Á meðal annarra þátttakenda á þessu málþingi má nefna Andre Nollkaemper (University of Amsterdam), Shireen Avis Fisher (Appeals Chamber, Special Court for Sierra Leone), Yuval Shany (Hebrew University), Ruth Mackenzie (University College London), Harmen van der Wilt (University of Amsterdam)og Þórdísi Ingadóttur, dósent við lagadeild HR. Lagadeild HR er umsjónaraðili og þátttakandi í alþjóðarannsóknarverkefninu DOMAC. Á árinu 2008 hlaut verkefnið veglegan styrk úr 7. rannsóknaráætlun Evrópusambandsins að upphæð 1,4 milljónir evra. Þetta er langhæsti styrkur sem úthlutað hefur verið til íslensks verkefnis á sviði hug- og félagsvísinda. Þetta er einnig í fyrsta sinn sem íslenskur háskóli fær styrk úr rannsóknaráætlun Evrópusambandsins vegna rannsókna í lögfræði. DOMAC leitast við að meta áhrif alþjóðadómstóla á landsrétt í málum er varða gróf og víðtæk mannúðar- og mannréttindabrot. Markmiðið er að efla samspil landsréttar og þjóðaréttar á þessu sviði, auka áhrif og virkni alþjóðadómstóla og bæta þar með viðbrögð landsréttar við slíkum brotum. Samstarfsskólar Háskólans í Reykjavík eru Amsterdam University, Hebrew University í Jerúsalem og University College London. Þórdís Ingadóttir, dósent við lagadeild Háskólans í Reykjavík, stýrir verkefninu í heild. Um 20 rannsakendur eru nú að vinna að verkefninu. DOMAC verkefnið er umfangsmikið. Rannsóknir fela m.a. í sér greiningu á alþjóðadómstólum, réttarkerfum í landsrétti, dómum alþjóðadómstóla sem og í landsrétti, og framfylgd þeirra. Hlutverk dómstóla og alþjóðastofnana í uppbyggingu réttarkerfa er einnig skoðað. Rannsóknir krefjast vettvangsferða og hafa starfsmenn heimsótt þau Balkanlönd sem eru að kljást við uppgjör stríðsglæpa og grófra mannréttindarbrota, sem og fimm Afríkuríki.
Mest lesið Hvað segja veðbankarnir? Innlent Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Lífið Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Innlent Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Innlent Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Innlent „Nú er komið að mér“ Erlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Innlent Geri lítið úr fyrirmyndarstarfi Innlent Erlendir fjölmiðlar fylgjast með: Trump hafi þvingað Íslendinga í kjörklefana Erlent Fleiri fréttir Bjargað úr sjálfheldu í Reynisfjöru Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Hvað segja veðbankarnir? Valkyrjurnar halda blaðamannafund Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Geri lítið úr fyrirmyndarstarfi Átröskun vangreind hjá strákum og sífellt yngri börn þurfa aðstoð Vísbendingar um aukna kjörsókn Kjörsókn meiri en á sama tíma í síðustu þingkosningum „Þetta gæti ekki verið meira spennandi“ Allt bendi til lítils jökulshlaups Bjart og þurrt þegar þjóðin gengur að kjörborðinu Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Hnífjafnt í síðustu könnuninni Umræðan hafi verið ruglingsleg og á lágu plani Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Símtöl almennt málefnaleg en dónaskapur inni á milli Aldrei komið í þvílíkt fjölmenni þar sem er svona mikil þögn Jákvæð „sjálfsmyndarkrísa“ í Brussel Forystukonum ríkisstjórnarinnar brugðið vegna alvarlegra hótana Líflátshótanir, þandar taugar og bein útsending frá norsku konungshöllinni Voru á Íslandi þegar maðurinn var drepinn Missti öxi sem hann hafði inni á sér og var handtekinn Uppsagnirnar hafi komið eins og reiðarslag Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Brynjar tekur við af Líf Sjá meira