Bleikjustofnar sýktir í tveim stöðuvötnum 30. nóvember 2009 02:00 Frá Elliðavatni Alvarleg sýking er komin upp í bleikjustofni vatnsins. Urriðastofninn er einnig smitaður þótt í minni mæli sé.fréttablaðið/heiða
Nær allur bleikjustofn Elliðavatns sem og Vífilsstaðavatns er smitaður af nýrnaveiki; svokallaðri PKD-sýki. Hátt hlutfall bleikjunnar sýnir einkenni sýkinnar og líklegt er talið að verulega fækkun bleikju í vötnunum tveimur megi að stórum hluta rekja til hennar. „Um helmingur fisksins sem við skoðuðum hafði sjúkleg einkenni PKD-sýki, sem er hærra hlutfall en ég átti von á. Hvort þessi fiskur er deyjandi er ekki gott að segja til um því erfitt er að meta hvernig fiskur braggast í villtri náttúru,“ segir Árni Kristmundsson, deildarstjóri Rannsóknadeildar fisksjúkdóma á Tilraunastöðinni að Keldum, en hann stýrir viðamikilli rannsókn vegna sýkingarinnar í samvinnu við Þórólf Antonsson og Friðþjóf Árnason, sérfræðinga hjá Veiðimálastofnun. Árni segir rannsóknina of stutt á veg komna til að meta hversu mikil áhrif sýkinnar verði á fiskstofna vatnanna til lengri tíma litið. „En ég get þó sagt að verði veðurfar með sama hætti og verið hefur sé ég engar forsendur fyrir því að þessi sýking sé að hverfa og hún mun að öllum líkindum hafa áfram afgerandi áhrif, sérstaklega á bleikjuna þar sem hún er mjög kuldakær og sérlega næm fyrir sýkinni.“ PKD-sýki er sjúkdómur sem er háður hitastigi vatns og kemur ekki upp nema það nái tólf gráðum í ákveðinn tíma. Nú eru þessar forsendur fyrir hendi í vötnunum og svo hefur verið um alllangt skeið. Árni tengir það við verulega fækkun í bleikjustofnunum á síðustu tveim áratugum. Í tengslum við rannsóknaverkefnið var í sumar safnað um 700 sýnum úr Elliðaám, Elliðavatni, Vífilsstaðavatni, Mývatni, Mjóavatni á Auðkúluheiði og Úlfljótsvatni. Verkefnið er styrkt af Orkuveitunni og Reykjavíkurborg. „Þó að ég sé ekki búinn að skoða vefjasýni úr Úlfljótsvatni og af Auðkúluheiðinni get ég sagt frá því að enginn fiskur þaðan var með sjúkleg einkenni,“ segir Árni. Aðstæður í þessum vötnum eru allt aðrar en í sýktu vötnunum tveim og ná aldrei sama vatnshita og grunn láglendisvötn. Vel getur verið að sýkilinn sé þar að finna en ólíklegt er að það hafi áhrif á fiskistofna vatnanna. Þegar sýking kemur upp í Elliðavatni verður mörgum hugsað til laxastofnsins í Elliðaánum. Árni segir ekkert benda til að sjúkdómurinn herji á laxinn. Rétt er að taka fram að sýkingin sem um ræðir er á engan hátt hættuleg mönnum sem leggja sér fiskinn til munns. svavar@frettabladid.is
Mest lesið Eldgos hafið Innlent Hyggst ekki segja af sér þrátt fyrir reiði vegna Epstein-listans Erlent Samhjálp „hálfnuð í mark“ og endurskipuleggur Kaffistofuna Innlent Ólöf Tara yrði hissa en þakklát að gangan sé tileinkuð henni Innlent Skipstjóri handtekinn talinn vera undir áhrifum Innlent Yfirleitt Íslendingar sem aki utan vega Innlent „Ég var örugglega getinn í Land Rover“ Innlent „Ekki bara fávísir hitabeltisbúar sem eru að detta á hausinn“ Innlent Engu mátti muna á að alvarlegur árekstur yrði á þjóðveginum Innlent Göngumaður slapp ómeiddur úr sjálfheldu við Hestskarð Innlent Fleiri fréttir Eldgos hafið Samhjálp „hálfnuð í mark“ og endurskipuleggur Kaffistofuna Göngumaður slapp ómeiddur úr sjálfheldu við Hestskarð Ólöf Tara yrði hissa en þakklát að gangan sé tileinkuð henni „Ekki bara fávísir hitabeltisbúar sem eru að detta á hausinn“ Yfirleitt Íslendingar sem aki utan vega Skipstjóri handtekinn talinn vera undir áhrifum „Ég var örugglega getinn í Land Rover“ „Valda fleiri húðkrabbameinum en sígarettur lungnakrabbameini“ Göngumaður í sjálfheldu við Hestskarð Ákall um ljósabekkjabann og gengið fyrir Ólöfu Töru Enn rís land í Svartsengi Engu mátti muna á að alvarlegur árekstur yrði á þjóðveginum Hleypti líklega óvart úr Kominn úr lífshættu eftir stunguárás við Mjóddina Gísli Jóns í tveimur útköllum frá miðnætti „Það gæti tekið bara fimmtán mínútur að kála þeim“ Maðurinn er fundinn Ekki sekur um að hafa valdið dauða manns í Kiðjabergi Fagnar áherslum ríkisstjórnarinnar í sjávarútvegi Ræðukóngurinn talaði í rúman sólarhring Miklar bikblæðingar á Norðurlandi Ræðukóngur Alþingis tekinn tali og varað við bikblæðingum á þjóðvegunum Þriggja ára barn ráfaði af leikskólanum og í Bónus Varnarviðbragð húðarinnar að verða brún í sól „Það þarf enginn að vera með vopn nema sérsveitin“ Hitinn 14 til 28 stig í dag: Vara við því að skilja hundinn eftir í bílnum Fjöldi ökumanna sektaður fyrir að leggja ólöglega Akureyri skelfur vegna jarðhræringa við Grímsey Inga ætlar ekki að biðjast afsökunar Sjá meira