Innlent

Vörukarfan lækkaði í Krónunni og Bónus

Á tímabilinu janúar til maí á þessu ári hækkaði vörukarfa ASÍ mest um 3,6% í Kaskó og í Nóatúni um 3,1%. Verð lækkaði um 2,6 í 10-11, 1,7% í Krónunni og 1,6% í Bónus. Hækkanir á hreinlætisvörum, drykkjavörum og ýmsum nýlenduvörum eru áberandi í flest öllum verslunum. Þetta kom fram í verðalagseftirliti ASÍ en mælingar voru gerðar í í verslunum í viku 3. og 19.

Í lágvöruverðsverslunum hækkaði vörukarfan mest í Kaskó um 3,6% en lækkaði um 1,7% í Krónunni. Í Kaskó var má rekja hækkunina til hækkunar af kjötvörum, á hreinlætis- og snyrtivörum og hækkunar á drykkjarvörum. Í Krónunni má rekja mestu breytingarnar til hækkunar á hreinlætis- og snyrtivörum eða um 10,5% og hækkun á drykkjarvörum.

Í stórmörkuðum hækkaði verðið mest í Nóatúni

Í stórmörkuðunum hækkaði verð vörukörfunnar mest í Nóatúni eða um 3,1% sem rekja má að mestu til hækkana á kjötvörum, hreinlætis og snyrtivörum, brauð og kornvörum og drykkjavörum. Hagkaup lækkaði verðið mest af stórmörkuðum eða um 0,7%,

Verð lækkaði í verslunum 10-11

Í klukkubúðunum var mesta hækkunin í 11-11 2,5%, sem má rekja tilhækkunar á hreinlætis og snyrtivörum, hækkunar á ýmsum matvörum og hækkunar á brauði og kornvöru. Í 10-11 lækkaði heildarkarfan um 2,6% á milli mælinga sem skýrist að mestu af lækkun á grænmeti og ávöxtum, drykkjavörum og kjötvörum í körfunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×