Innlent

Niðurskurður mun bitna verulega á barnafjölskyldum

Höskuldur Kári Schram skrifar
Sóley Tómasdóttir.
Sóley Tómasdóttir.

Barnafjölskyldur munu finna verulega fyrir þeim niðurskurði sem Reykjavíkurborg hefur boðað á næsta ári að sögn borgarfulltrúa Vinstri grænna. Seinka á inntöku barna í leikskóla og þá verða frístundaheimili lokuð fyrir hádegi - sextán daga á ári.

Reykjavíkurborg ætlar að spara 3,3 milljarð á næsta ári með hagræðingu í stjórnsýslu og rekstri en þar af er leikskóla og menntasviði gert að spara rúma einn milljarð.

Borgarstjóri hefur fullyrt að börn muni ekki finna fyrir niðurskurðinum. Því er borgarfulltrúi Vinstri grænna, Sóley Tómasdóttir, ósammála.

„Það er alveg ljóst að börn koma til með að finna fyrir niðurskurðinum og fullyrðingar um að þetta komi ekki til með að skerða þjónustu við þau eru alveg úr lausu lofti gripnar það segir sig sjálft að niðurskurður af þessari stærðargráðu sem við erum að fara í núna kemur kemur að sjálfsögðu til með að bitna á börnum."

Sóley bendir á að til standi að seinka inntöku barna á leikskóla - þannig að börn sem fram til þessa hafa verið tekinn inn frá vori og fram á haust verða framvegis öll tekin inn að hausti. Þetta kalli á aukinn kostnað foreldra þar sem börn þurfa að dvelja lengur hjá dagmæðrum.

Þá verður frístundaheimilum lokað fyrir hádegi í kringum stórhátíðir og starfsdaga kennara.

„Sem þýðir að börn í 1. til 4. bekk verða í reiðileysi eða foreldrar þurfa að bjarga þeim dögum sjálfir 16 daga á ári," segir Sóley.

Vinstri grænir vilja hækka útsvar til að koma í veg fyrir þjónustuskerðingu en því er meirihluti borgarstjórnar ósammála.

„Þannig að í staðinn fyrir að auka álögur á borgarbúa alla með útsvarshækkun eins og við höfum lagt til þá er verið að auka álögur á suma. Sennilega þá hópa sem síst skyldi auka álögur á," segir Sóley að lokum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×