Innlent

Lögreglumaður enn frá störfum

Lögreglumenn við störf.
Lögreglumenn við störf.

Lögreglumaðurinn sem fékk stein í höfuðið í mótmælum við Alþingishúsið í síðustu viku er ekki enn kominn til vinnu, segir Stefán Eiríksson lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu. Maðurinn var við skyldustörf þegar steinhellu var kastað í höfuð hans. Hann fékk heilahristing en líklegast hefði farið verr ef maðurinn hefði ekki verið með hjálm á höfðinu. Þá kinnbeinsbrotnaði lögreglumaður í átökum við Hótel Borg á gamlársdag. Hann var jafnframt frá vinnu vegna meiðslanna.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×